Úrval - 01.11.1968, Síða 57
ARTURO TOSCANINI
55
hljómsveitarstjóri, sem gat jafnvel
látið lélega hljómsveit ná ótrúlegum
árangri.
Árið 1898 réði hann sig aftur til
La Seala og ferðaðist jafnframt með
hljómsveit sína til Ameríku. Tíu
árum seinna var Toscanini orðinn
heimsfrægur maður og bauðst þá
starf við Metropolitanóperuna í
New York. Hann var eins og venju-
lega uppstökkur og gagnrýninn á
æfingum, hann var meira að segja
svo ruddalegur, að hljómlistar-
mennirnir gerðu verkfall. En Tos-
canini breytti ekki afstöðu sinni,
hann krafðist óaðfinnanlegs leiks,
og hann gat ekki heldur breytt
skapgerð sinni eða tamið sér prúð-
ari framkomu. Hann sagði eitt sinn
við hljóðfæraleikara, sem honum
líkaði ekki við: „Þér einn standið í
vegi fyrir því að þetta tónverk sé
túlkað rétt“. Toscanini starfaði lengi
hjá Metropolitanóperunni, og með
þeim árangri, að hljómsveitin varð
sú bezta í heimi.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin brauzt
út, sneri Toscanini heim til Ítalíu
og hélt hljómleika í stærstu borg-
um landsins. Þrátt fyrir tilmæli
stjórnarvaldanna og ýmissa ofstæk-
isfullra manna, neitaði hann að
hætta að leika verk eftir Beethoven,
Wagner og önnur þýzk tónskáld.
í augum Toscaninis var músikin
aðalatriðið, en ekki hverrar þjóðar
tónskáldið var.
Árið 1920 varð hann listrænn
ráðunautur La Scalaóperunnar og á
næstu fimm árum tókst honum að
gera þetta leikhús að því sem það
er enn þann dag í dag, háborg
óperulistarinnar í heiminum.
Á þessum árum gerðist líka ým-
islegt annað markvert á Ítalíu. Ben-
ito Mussolini komst til valda, barði
niður alla andstöðu og gerðist ein-
ræðisherra. Hann gaf þá skipun,
að mynd af honum skyldi hengd
upp í sérhverri opinberri byggingu,
þar með töldum leikhúsum, og að
alla hljómleika skyldi hefja með
því að leika Giovinezza, hersöng
fasista. Þessari skipun var hlýtt um
gervalla Ítalíu — nema í La Scala
í Milano. Toscanini neitaði bæði að
hengja upp mynd af Mussolini og
leika Giovinezza, en hann var orð-
inn svo frægur maður, að Musso-
lini gat ekkert gert í málinu ann-
að en að neita að sækja hljómleika
hans.
Skömmu seinna réðust nokkrir
ungir fasistar á Toscanini á götu,
til þess að refsa honum fyrir óhlýðni
hans, en Mussolini var hræddur við
almenningsálitið og skipaði svo fyr-
ir, að hann skyldi látinn í friði.
Toscanini hélt aftur til Ameríku
árið 1929 til þess að stjórna sinfón-
íuhlj ómsveitinni í New York. Músik
hans náði nú eyrum milljóna manna
með útvarpi og hljómplötuútgáfum.
Þegar hann ferðaðist um Evrópu
með hljómsveit sína, var honum
tekið sem frægustu kvikmynda-
stjörnu.
Þó að hann væri í rauninni ekki
pólitískur, var það eindregin skoð-
un hans, að fasisminn hneppti alla
listræna sköpun í fjötra. Þegar Hitl-
er komst til valda í Þýzkalandi, hét
hann því, að halda þar aldrei tón-
leika framar, og nokkru síðar fór
hann burt frá Ítalíu og kvaðst ekki
koma þangað aftur fyrr en fasism-