Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 10
8
ÚRVAL
alla þá peninga. sem hún hafði feng-
ið fyrir leik sinn í kvikmyndinni,
og það var víst engin smáupphæð.
Ef hún hefði stigið fæti sínum á
ameríska grund, hefði hún þurft að
borga skatt af peningunum! En nú
komst hún með þá, skattlaust til
Spánar, þar sem heimili hennar var.
KVÖLD EITT, ÞEGAR Bing Crosby
mætti einn og konulaus í boð nokk-
urt, spurði Frank Sinatra:
— Hvers vegna ertu ekki með
konuna þína með þér, Bing?
— Ja, hún átti því miður engan
kjól til að fara í.
Frank varð undrandi og sagði: Er
þetta virkilega satt?
— Já, hún segir það, og þá hlýtur
það að vera satt.
— En ég skal segja þér, svona
okkar á milli, að fataskápurinn
hennar er svo þéttskipaður, að jafn-
vel nýfæddi mölurinn getur ekki
lært að fljúga.
UM HIÐ LÁTNA norska ljóðskáld
Hermann Wildenway, sem oft var
sjálfhæðinn og fyndinn, hefur verið
sögð eftirfarandi saga:
Kvöld eitt var Wildenway að lesa
upp í Kaupmannahöfn og var hvað
eftir annað truflaður af hrópum og
köllum: Hærra, hærra, við heyrum
ekkert. Þegar hrópin urðu háværari,
beygði Wildenwey sig fram og sagði
með sinni vingjarnlegu röddu, að
hann mjög gjarnan vildi hækka
röddina, en „vinur minn, hann Lar-
sen skógarvönður, situr hérna á
fremsta bekk. í tvo sólarhringa höf-
um við verið að skemmta okkur
saman, og í allan dag hefur hann
verið á mótorhjóli um allt Sjáland
og athugað skógana. Á þessari
stundu situr hann hér beint fyrir
framan mig í „smóking" og lakk-
skóm og steinsefur. Ég tími bara
ekki að vekja hann“.
EINS OG ALLIR VITA er Picasso-
mjög nýtízkulegur málari, og er
ekki alltaf auðvelt að finna líking-
ar í myndum hans. Eftirfarandi
saga gæti sannað það:
Einu sinni hélt Picasso sýningu
í Varsjá. Á meðan hann dvaldist
þar, var brotizt inn í íbúð hans, en
listamaðurinn kom rétt í tæka tíð
til að sjá andlit innbrotsmannsins,
áður en hann stökk á brott. Picasso
teiknaði í snatri andlitsmynd og fór
með hana til lögreglunnar.
Lögreglan lét gera mörg eintök
af teikningunni og' sendi þau til
■allra nærliggjandi lögreglustöðva
með skipun um að handtaka þann,
sem myndin væri af. Eftir skamma
stund var búið að handtaka um 50
menn, þar að auki tvo hesta, eina
sardínudós, einn kött og einn flösku-
upptakara!
HINN AFKASTAMIKLI rithöfund-
ur Georges Simenon, sem skrifar
eina sakamálasögu að jafnaði á
mánuði, er fyrirmyndar eiginmaður.
Nefnd nokkur, sem undirbjó bóka-
sýningu í París, bað Simenon að
vera viðstaddan til að skrifa nafn
sitt á bækurnar sínar, en hann sendi
afboð, þ.e.a.s. bréfið var skrifað af
konu hans og var svohljóðandi: —■
Maðurinn minn getur því miður
ekki orðið við ósk yðar. Hann kemst
ekki að heiman. Ég á von á barni.