Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 129

Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 129
FLORENCE NIGFITINGALE 121 hennar. Já, hún hafði syndgað — „frammi fyrir dómstóli drottins". — „Enginn“, segir hún, „hefir syndgað svo mjög gegn heilögum anda sem ég“. um það var hún alveg viss. Ár- angurslaust bað hún til guðs um lausn frá hégómagirnd og hræsni; hún gat ekki fengið það af sér að brosa eða vera kát, „því að hún hat- aði tilhugsunina um það, að guð heyrði hana hlæja, eins og hún hefði ekki iðrazt synda sinna“. Einhver veikari skapgerð hefði látið bugast fyrir slíkum sálarkvöl- um, gugnað og gefizt upp. En þessi óvenjulega unga kona stóð stöðug og barðist til sigurs. Með dásamlegri þrautseigju barðist hún, starfaði og gerði áætlanir í átta ár eftir synjun fyrstu ráðagerðar hennar. Þótt hún á ytra borðinu lifði áfram óhófslífi ungrar stúlku af fyrirmanna ættum, jafnframt því sem hún þjáðist af iðrun og samvizkubiti hið innra með sér, þá hafði hún stöðugt þrek til að viða að sér þeirri þekkingu og safna þeirri reynslu, sem ein var þess megnug að gera hana færa um að hrinda þeirri hugsjón í framkvæmd, sem hún missti aldrei sjónar á. f laumi las hún af kappi athugasemd- ir læknanefnda rit heilbrigðis- stjórnarinnar og skýrslur frá sjúkrahúsum og fátækrahælum. Þegar hún ferðaðist erlendis með fjölskyldu sinni, notaði hún tímann svo vel, að það var naumast eitt einasta meiri háttar sjúkrahús í Ev- rópu, sem hún var ekki gagnkunnug, og varla nokkur stórborg, þar sem hún hafði ekki grandskoðað fá- tækrahverfin. Henni tókst að dvelja nokkra daga í klausturskóla í Róm og nokkrar vikur sem „miskunnsöm systir“ í París. Og meðan móðir hennar og systir leituðu sér hress- ingar í Karlsbad, laumaðist hún til heilsuhælis í Kaiserswerth, þar sem hún var rúma þrjá mánuði. Það olli örlagaríkum tímamótum í lífi henn- ar. Reynsla sú, er hún öðlaðist sem hjúkrunarkona í Kaiserswerth, lagði grundvöllinn að öllu framtíðarstarfi hennar og veitti henni úrslitastyrk til að leggja út á lífsbraut þá, er hún hafði valið. En nú beið hennar ný raun. Hún hafði vísað lystisemdum þessa heims á bug með fyrirlitningu og ógeði; hún hafði sigrazt á ennþá hættu- legri freistingu, sem stundum ásótti hana á þreytustundum, að helga hinn vanmetna dugnað sinn listum eða bókmenntum; síðasta eldraunin beið hennar í líki ungs manns, sem var hrífandi og í alla staði álitleg- ur. Allt til þessa höfðu aðdáendur hennar ekki verið henni annað en aukin byrði og blekking, en nú. — Hún hikaði við. Ný tilfinning gagn- tók hana — tilfinning, sem hún hafði aldrei þekkt áður og átti aldrei eftir að þekkja. Hin sterkasta og dýpsta af öllum mannlegum hvöt- um krafðist réttar síns. En þessi hvöt birtist henni íklædd eintrján- ingslegum hjúskaparbúningi Vikt- oriutímabilsins — hvernig átti ann- að að vera? — og hún hafði nóg sálarþrek til þess að bæla hana nið- ur. „É'g er greind að upplagi og' þrái andlega svölun“. skrifar hún, „og hana myndi ég hijóta hjá honum. Ég er ástríðufull að eðlisfari, og þar myndi hann svala þrám mínum. Eg er siðavönd og starfsöm að eðlisfari,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.