Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 77
ér segið, að henni hafi
verið neitað um starf
við Hirðleikhúsið?"
„Já, yðar hátign.“
„Nú, hvers vegna
komið þér á minn fund, greifi? Er
ég skuldbundinn til þess að hitta
hvern flækingsdansara, sem á hér
leið um?“
„Þessi er vel þessi virði að líta á
hana, yðar hátign.“
Konungurinn var ólundarlegur á
svipinn, en hikaði samt...
Aður en honum veittist tími til
að svara, heyrðist hávaði framan úr
biðsalnum, hinni þungu hurð var
hrundið upp, og unaðsfögur, ung
kona stikaði inn í herbergið. Hún
var með hrafnsvart hár og leiftrandi
augu.
„Ungfrú Lola! Hvers konar brjál-
æði er þetta eiginlega?" hrópaði
Rechburg greifi og stökk í veg fyrir
hana til þess að vísa henni út úr
herberginu. En Lúðvík konungur,
sem stóð þarna frá sér numinn,
bandaði til hans hendinni ng sagði:
„Bíðið við, greifi, ég held, að þér
hafið kannske á réttu að standa.“
Hann virti fyrir sér stúlkuna, sem
stóð þarna frammi fyrir honum,
virti hana fyrir sér frá hvirfli til
ilja. Hár hennar var hrafnsvart,
stór, blá augun loguðu af æsingu.
Andlit hennar hafði fullkomna lög-
un, húð hennar var fannhvít og líkt
og lýsti af henni, varir hennar þykk-
ar og lostafullar. Grannur hálsinn
virtist vera úr alabastri, brjóstið
gnæfði tignarlega upp frá tággrönnu
mittinu.
( h
Lola Montez
var heimsfræg
œvintýralcona.
Hún var í tygjum
við tónskáldið
Franz Liszt
og Lúðvík konung 1.,
og olli miklu
hneyksli í Evrópu
á sínum tíma.
Eftir R. STERN
Ævintýra-
konan
sem
heillaði
kónginn
v_________________)
75