Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 84
82
ÚRVAL
stöðu á svölunum og hellti kampa-
víni yfir þá.
Hún hófst tafarlaust handa og
reyndi að styrkja stöðu sína með
því að endurskipuleggja háskólann
og afnema ritskoðun á bókum, sem
seldar voru stúdentunum. Hún lét
setja brjóstmynd af Lúther í Val-
höll. Hún hvatti konung til þess að
halda áfram endurnýjun á ýmsum
byggingum í Munchen og reisa nýj-
ar. Hún stóð nú á hátindi veldis
síns. Það var jafnvel svo komið, að
innan sjálfs háskólans, sem var eitt
helzta vígi andstæðinga hennar,
hafði myndazt lítill stúdentahópur,
hinir svokölluðu „Alemanar", sem
studdu hana og málstað hennar
eindregið og mynduðu lífvörð um
hana, hvert sem hún fór.
En lýðurinn varð sífellt ofsa-
fengnari með hverjum deginum. í
janúarlok árið 1848 réðst ólmur
múgur að henni á götunum og æpti:
„Drepum Lolu!“ Lífverði hennar
var sópað burt, enda var þar um
mikinn liðsmun að ræða. Með hjálp
þriggja tryggustu lífvarða sinna
tókst henni að ryðja sér braut með
höggum og barsmíð alla leið að
Theatinerkirkjunni. En þar skaut
góðviljaður prestur skjólshúsi yfir
hana, þangað til riddaraliði því,
sem konungur hafði sent á vett-
vang, hafði tekizt að dreifa múgn-
um.
Það fóru að renna tvær grímur á
konung, er átökin hörðnuðu sífellt.
Hann lét loka háskólanum og opn-
aði hann svo að nýju vegna ofsa-
fenginna mótmæla. Hópar manna
söfnuðust saman úti fyrir hliðum
konungshallarinnar og kröfðust
dauða Lolu. Götuvígjum fjölgaði
stöðugt á götunum, og bylting virt-
ist alveg yfirvofandi. Og þá lét
Lúðvík loks undan, dapur í huga.
í viðurvist þungbúinna ráðherra
sinna undirskrifaði hann fyrirskip-
un um handtöku Lolu og brott-
rekstur úr landi.
Hún varð sem lömuð, er henni
barst sú frétt, að konungur hefði
látið undan síga. Hún stakk á sig
nokkrum gimsteinum og skauzt út
úr húsinu í fylgd sinna þriggja
tryggu lífvarða og þrammaði ögr-
andi í gegnum ólgandi mannþyrp-
inguna, sem hafði safnazt þar sam-
an úti fyrir. Þegar hún hélt burt,
ruddist lýðurinn inn í höll hennar
og ruplaði þar og rændi. Konungur-
inn hafði staðið utarlega í mann-
þyrpingunni og fylgzt með því, sem
fram fór, hryggur í bragði. Honum
var rutt um koll, og menn tröðkuðu
á honum í öllum látunum. Honum
gagnaði ekki heldur mikið hin ve-
sæla uppgjöf, því að einum sex
vikum eftir brottför hennar var
hann hrakinn úr hásæti sínu og rek-
inn burt frá höfuðborginni.
Lolu tókst að komast heil á húfi
til Sviss ásamt lífvörðunum sínum
tryggu. Þar dvaldi hún um tíma,
þangað til hinir tryggu fylgismenn
frá hálfs annars árs veldistíma
hennar voru allir farnir burt. Nú
urðu snögg umskipti í lífi hennar.
Hún giftist enskum undirliðsfor-
ingja, Heald að nafni, og var hand-
tekin fyrir fjölveri, þar eð hún
hafði aldrei skilið við James liðs-
foringja á löglegan hátt. Hún var
látin laus gegn fjártryggingu og
notaði tækifærið til þess að flýja