Úrval - 01.07.1972, Side 36
34
ÚRVAL
við það hættulega breytilegu magni af
glucose og kinini. (quinine).
1 Honolulu tekur aðgætinn banda-
riskur tollþjónn eftir grunsamlegum
pakka, sem sendur hefur verið frá
Bangkok i Thailandi tii manns eins i
Chicago. Hann reynist hafa að geyma
hlébarðaskinn með tveim pundum af
hreinu heroini földum inni i hausnum.
Onnur niu pund af eiturlyfinu finnast
svo i skinnasendingu sem hefur þegar
farið i gegnum tollinn.
Þessir sundurleitu atburðir, sem
gerzt hafa i ýmsum hlutum heims, eru
einkenni nýrrar þróunar á hinum al-
þjóðlega eiturlyfjamarkaði, dæmi um
heroinstrauminn, sem flæðir nú frá
Suðaustur-Asíu. Eiturlyfið hefur
þegar flætt yfir Suður-Vietnam, og
talsvert magn af þvi kemur nú einnig
fram á mörkuðum i öðrum löndum.
Núna er Tyrkland aðaluppspretta
heroins þess, sem berst til Bandarikj-
anna. Árum saman var miklu magni
af hinni löglegu ópiumuppskeru
landsins smyglað til leyniefnaverk-
smiðja I suðurhluta Frakklands, þar
sem þvi var breytt i heróin og þvi siðan
smyglað til Ameriku. Tyrkland hefur
nú samþykktað stöðva alia ópiumrækt
eftir lok þessa árs. En jafnvel þótt
bann þetta verði árangursrikt, mun
það ekki hafa nein áhrif á herionmagn,
sem berst til Bandarikjar.na, nema
straumurinn frá Suðaustur-Asiu verði
lika stöðvaður, segir John W. Parker,
einn af yfirmönnum njósnadeildar
Eftirlitsstofnunar eiturlyfja og hæt-
tulegra lyfja i Bandarikjunum (BND-
D).
ópium sem gjaldmiðill.
Hjarta ópiumræktarsvæðanna i Suð-
austur-Asiu er hinn svokallaði „gullni
þrihyrningur”, 60.000 fermilna fjall-
lendi, klætt frumskógi á landamærum
norðausturhluta Burma, norðurhluta
Thailands og norðvesturhluta Laos.
Rikisstjórnir þessara landa hafa harla
litil yfirráð á svæði þessu. Þetta er
úfið og ógnvænlegt land, þar sem
harögerir fjallaættflokkar búa. Það er
einnig land óskipulegra herflokka,
skipulagðra hópa uppreisnarseggja,
land „herkonunga” og stórsmyglara.
Þar eru ræktuð að minnsta kosti 700
tonn af hráópium á ári. Núna koma
þaðan um 50% ársframleiðslu heims-
ins af heroini, og búizt er við, að sú tala
hækki allt upp i 70% á nokkrum árum.
Megnið af þessu ópium er ræktað af
fjallaættflokkum i Shanfylkinu i
Burma. Það er langt siðan ættflokkar
þessir komust upp á lag með að rækta
jurt, sem gefur af sér miklar tekjur.
Það var ópiumjurtin, sem gróðursett
er slðla sumars, og siðan er skorið upp
næsta vetur. Af jurtinni fæst hrá-
ópium. Þetta lyktsterka hráópium
hefur verið aðalverzlunarvara beirra
öldum saman og er jafnframt notað
sem gjaldmiðill. Fyrir eitt pund fæst
svln, fyrir þrjú pund hestur Einnig er
hægt að nota það i vöruskiptum fyrir
salt, fataefni og búsáhöld.
1 fyrrasumar heimsótti ég þetta
svæði i samliggjandi landamærahér-
uðum þessara þriggja landa ásamt
bandariskum eiturlyfjalögreglu-
manni. Við flugum upp með hinu
moldbrúna Mekongfljóti. ,A hægri
hönd gat ég séð Laos, en þar er að
finna meginupptök þess heroin-
straums, sem flæðir suður til banda-
riska herliðsins i Suður-Vietnam. Til
vinstri var Thailand, þar sem ópiu-
rækt var að visu bönnuð árið 1958, en
hinir óstýrilátu og uppreisnargjörnu
fjallaættflokkar i norðurhéruðunum
rækta samt um 200 tonn af þvi árlega.
Siðan tók Burma við, en þar eru fram-