Úrval - 01.07.1972, Side 37
UPPSPRETTA EITURLYFJANNA
35
leidd um 350 tonn af ólöglegu ópíum
árlega. Or flugvélinni gat ég séð inn 1
Shanfylkið, þar sem uppreisnar-
flokkar ráða næstum alveg lögum og
lofum og um 60.000 bændur rækta
ópium.
Kinversk „mafia”.
Hverjir eru hinir raunverulegu
stjórnendur þessara geysimiklu við-
skipta? öðru hverju eru Kina og
Noröur-Vietnam ásökuð um að vera
hinir raunverulegu sökudólgar. En
þaö eru tveir aðrir hópar, sem eiga
hina raunverulegu sök á þessu. Annar
samanstendur af leifum kinverskra
þjóðernissinnahersveita, sem reknar
voru burt frá Kina árið 1949. Er þar
um 6000 manna hóp að ræða. Þessir
menn hafa komið sér vel fyrir I
norðurhluta Burma og ThaUands sem
ævintýramenn og kaupahéðnar, sem
lifa að miklu leyti á hinni geysilegu
ópiumverzlun. Þeir hafa mikinn og
góðan útbúnað af öllu tagi, mikið af
vopnum og starfa sem milliliðir i við-
skiptunum og sjá einnig um flutning-
ana. Þeir kaupa ópiumið frá fjallaætt-
flokkunum og selja það svo aftur. Þeir
fylgjast með stórum sendingum og
gæta þess, að þær komist örugglega á
leiðarenda. Og þeir leggja tolla á allt
það ópium, sem fer um svæði þau, sem
þeir ráða yfir.
Hinn hópurinn, sem er jafnframt
miklu mikilvægari, er hin furðulega
kinverska „mafia”, sem ræöur nú yfir
öllu þvi, sem snertir sjálfa framleiösl-
una, þ.e. heroinvinnslu úr ópium
pökkun heroinsins og dreifingu. Þessi
hringur samanstendur aðallega af
klikum frá Fukienhéraði I Kina, þ.e.
strandhéraðinu, sem er gegnt For-
mósu. Menn þessir hafa smám saman
verið aö flytjast burt frá sinum
hrjóstrugu og fátæku heimabyggðum,
hafa ýmsar fjölskyldur þaðan setzt að
Inálægum löndum, þar sem fólk þetta
hefur brátt fengið orð á sig fyrir að
vera harðskeytt og slóttugt i við-
skiptum, enda hefur það yfirleitt lagt
stund á verzlun og viðskipti. Nú
mynda þessir fjölskylduhópar eins
konar viðskiptahring, sem er þó að
visu nokkuð laus i reipunum.
Ópiumverzlunin á þessum slóðum er
margra alda gömul. Aður miðaði hún
aðallega að þvi að sjá fyrir þörfum
aslskra ópíumneytenda. En eftir þvi
sem fleiri og fleiri ánetjuðust heroin-
inu I Bandarlkjunum á sjöunda tug
þessarar aldar, tóku eiturlyfjasalar
þessir að öfunda glæpahringi á Vestur-
löndum æ meira af þeim ofboðslega
gróða, sem þeir rökuðu saman á eitur-
lyf javerzluninni. Og kinverska
mafian gerði sér grein fyrir þvi, að nú
beið hennar alveg tilbúinn nýr mark-
aður, þegar afskipti Bandarikjanna af
styrjöldinni i Vietnam urðu þess vald-
andi, að þangað voru send hundruð
þúsunda Bandarikjamanna.
Ópium hefur aldrei verið notað
mikið af Vesturlandabúum, vegna
þess að það er fyrirferðarmikið, hefur
sterka lykt, sem auðvelt er að þekkja,
og vegna þess að það útheimtir fiókinn
reykingarútbúnað og reykingaað-
ferðir. Um miðjan sjöunda tug aldar-
innar byrjuðu Kinverjar þvi að leita að
leiöum til þess að breyta' þvi i vöru,
sem auðvelt væri að meöhöndla. . Og
þeir settu á markaðinn efni það, sem
kallast „khai”, en það er blanda af úr-
gangi, sem myndast, þegar ópium er
reykt, einnig morfinbasa og aspirini.
Þetta er liklega hryllilegasta eitur-
lyfið, sem fyrir finnst I veröldinni.
Menn ánetjast þvi mjög fljótt, og það
er tiltölulega ódýrt, og það tekur það
aðeins 12 til 18 mánuði að drepa þá,
sem neyta þess reglulega.