Úrval - 01.07.1972, Page 38
36
ÚRVAL
Ég sá hinar hryllilegu hörmungar,
sem þaö hefur i for með sér, þegar ég
heimsótti Vientiane, höfuðborg Laos.
Þar er heil gata með kofum, þar sem
khai er selt og þess neytt. Þegar litið
var inn I skuggaleg, óhrein grenin,
llktist þaö, sem fyrir augun bar, einna
helzt þvi, sem sjá mátti I Utrýmingar-
búðum nazista. Þar gat @ð líta menn,
sem voru lltið annað en skinin beinin.
Meirihluti þeirra var Aslubúar, en þar
voru einnig þó nokkrir Evrópumenn.
Þeir sátu þarna og störðu tómlega út i
bláinn. A hálftima fresti rumskuðu
þeir við og stauluðust á fætur til þess
að kaupa sér annan skammt af eitur-
duftinu, hita það siðan yfir kertaljósi i
litlum tinpapplrsbollum og soga síðan
að sér reyknum I gegnum vafin
papplrssogrör.
Verksmiðjuframleiðsla.
Llfshættan, sem var fylgifiskur
„khai”, gerði það að verkum, að það
var erfitt að selja það Vesturlanda-
búum. Augljósa lausnin til þess að
tryggja sem allra mestan ágóða var að
hefja sjálfstæða heroinframleiðslu óg
losa sig við hina evrópsku milliliði.
Þaö er að visu fremur einfalt að sjóða
ópium og breyta því þannig I morfín-
basa. En það er miklu flóknari aðferð,
tæknilega og efnafræðilega séð, að
hreinsa morfinbasann og vinna úr
honum heroin. Sú vinnsla er timafrek
og til þess starfs þarf reynda efna-
fræðinga.
Kinverjarnir hófust handa haustið
1967 með því að flytja inn nokkra
vandlega valda og hálaunaða efna-
fræðinga frá Hong Kong, Macao,
Taiwan (Formósu) og Singapore til
þess að koma á iagHrmir óieyfilegum
efnaverksmiðjuni >. gullna þrihvrn-
ingnum. Efn..fræðingarn'i uvóldu
þar I 6-8 vikur I einu eða nægdega lengi
til þess að breyta því óplum, sem
skoriö haföi verið upp um veturinn, I
heroin. Atvinnuveitendurnir fylgdust
með starfi þeirra af geysilegri for-
vitni. Sumir Kinverjar á þessum
slóöum sendu syni slna i háskóla til
þess að leggja stund á efnafræðinám.
Og að nokkrum árum liðnum hafði
klnverska maflan næga þekkingu á
heroinvinnslu til þess að hefja fram-
leiðslu algerlega á eigin spýtur.
Og hver hefur afleiðingin svo verið?
Aætlaö er, að komið hafi verið upp 15-
20 óleyfilegum efnaverksmiöjum til
heroinvinnslu I frumskógunum á
fjallasvæði þessu á landamærunum.
Oðru hverju kemur það fyrir, að eftir-
litsmenn komast nákvæmlega að legu
þessara efnaverksmiðja. Og sé eig-
andinn viss um það, þá flytur hann
stundum allt drasliö burt á öruggari
stað. En flestar eru þær kyrrar á
slnum stað, verndaðar af varð-
mönnum eigendanna, afskekktri legu
sinni og mútum til yfirvalda héraðs-
ins.
McBee majór, eiturlyfjalögreglu-
maður, sem staösettur er I Vientiane,
höfuðborg Laos, fór með mig til stáðar
eins I Laos, sem slik hreinsistöð haföi
verið flutt burt af. Staöur þessi var um
tvær mllur utan við bæinn Ban Houei
Sai, sem stendur við Mekongfljótið.
Eigandi stöðvarinnar, sem var Kín-
verji, hafði flutt hana yfir landamærin
til Thailands. í fylgd með lögreglu-
stjóra staðarins gengum við eftir
þröngum frumskógastig. Nokkrum
mánuðum áður hafði lögreglustjórinn
veriðstöðvaöurá þessum stig af flokki
úr her Laos, og höfðu hermennirnir
skipað honum að hætta að snuðra
þarna. Þegar við komum fyrir bugðu
á stignum, komum við að varðskýli,
þar sem kinverskir varðmenn höfðú
áður haldið vörð. Eftir að hafa gengið