Úrval - 01.07.1972, Síða 42
ÚRVAL
huga möguleikana á þvi aö kaupa upp-
skeru þeirra um ttma, meðan á breyt-
ingunum stendur, eins og þau gerðu i
Tyrklandi. En mest af þvt fé mundi
bara lenda t vösum samvizkulausra
embættismanna og skrifstofumanna,
nema fundin verði aðferð til þess að
losna við embættismenn t Laos sem
milliliöi I máli þessu. Um þetta við-
hefur McBee þessi orð: „Við kynnum
að vera reiðubúnir til þess að borga.
En hve mikið? Og hverjum?”
Bandariskir eiturlyfjalögreglumenn
hafa nýlega byrjað samstarf með sér-
stökum lögregluliðum á ýmsum
stöðum I norðurhluta Thailands , Laos
til þess að stöðva straum óptums og
heroins, sem berst frá „gullna þri-
hyrningnum.” Beri þær áætlanir ekki
árangur, mun hinn litli en stöðugi
straumur af asisku heroini, sem nú
berst til Bandarikjanna og Evrópu,
vaxa og aukast á næstu fáum árum og
verða að stórfljóti kvala og þjáninga,
sem mun færa hundruð þúsunda I
kaf. í bandariskri þingskýrslu, sem
nýlega hefur verið birt um mál þetta,
segir, að stöðvun þessa eiturlyfja-
straums muni verða „eitt erfiðasta
viðfangsefni bandariskrar utanrfkis-
málastefnu á þessum áratug”. Það
eru orð að sönnu.
Einu sinni var auðugur skógareigandi og timbursali, sem sendi boð til
sona sinna, fjögurra að tölu, sem allir voru giftir menn, þess efnis að hann
vildi, að þeir kæmu til fundar við sig ásamt konum sinum. Þegar þeir voru
allir serztir að kvöldVerðarborðinu, sagði hann: „Ég er mjög gamail
maður, og ég hef lengi verið vonsvikinn yfir þvi, að ég skuli ekki eiga nein
barnabörn. A morgun ætla ég að gera erfðaskrá mína, og ég mun veita
þeim hjónum 50.000 dollara aukadánargjöf, sem færa mér fyrsta barna-
barnið. Nú ætla ég að biðja borðbæn, og svo skulum við borða.”
Þvi næst beygði hann höfuð sitt og bað stutta borðbæn. Þegar hann leit
upp, voru öll hjónin horfin.
Holl ráð fyrir foreldra
Við þrennar yfirgripsmiklar athuganir og rannsóknir, sem nýlega hafa
farið fram, hefur það komið fram, að afkvæmum þeirra foreidea, sem
nota lögleg róandi eða örvandi lyf, hættir talsvert meira til þess að ánet-
jast ólöglegum lyfjum, en afkværnum þeirra foreldra, sem nota ekki slík
lyf.
Dr. Donald Louria við Lækna- og tannlæknaháskóla New Jerseyfylkis
skýrði einnig undirnefnd Oldungadeildar Bandarikjaþings frá þvi, að eins
af þessum rannsóknum hefði leitt i ljós, að „þegar móðir notar róandi lyf
daglega, verði barn hennar þrisvar sinnum liklegra til þess að nota
marijuana, heroin, LSD eða örvandi lyf heldur en börn mæðra, sem nota
ekki róandi lyf daglega.”
The Christian Science Monitor