Úrval - 01.07.1972, Page 71
69
kemst niður i eðlilega þyngd, eða helzt
aðeins neðar, hefur möguleika til að
lifa jafn lengi og sá, sem aldrei hefur
verið of feitur. — Forðizt matvörur,
sem erta lifur og nýru. Dragið úr þeim
matartegundum, sem auka kllóa-
fjöldann. En óbrotið fæði, matreitt á
heilsusamlegan hátt og þannig að það
örvi matarlystina, er heppilegast.
3. Gætið þess að fá nægilega
likamlega áreynslu. Það er vörn gegn
hjartasjúkdómum. Ef sá, sem er viö
kyrrsetustörf gætir þess að hreyfa sig
eins og nauðsyn krefur, á þaö sihn þátt
I aö hjartað standi sig vel og endist
lengi.
4. Góður og nægjanlegur nætursvefn
er þýðingarmikill. Smáblundur um
miðjan daginn er einnig til góðs. Það
má með sanni segja, að meðan sofið
er, hlaðast orkugeymar llkamans.
5. Stöðug andleg starfsemi er
þýðingarmikil. Heilafrumurnar eru
meðal þeirra fáu, sem ekki endurnýja
sig og verða þvl að duga manninum
llfið til enda. Það er algengt að gamalt
fólk, sem aldrei slakar á starfsemi
heilans, geti verið á samæ stigi, and-
lega séð, og ungt fólk. Heilinn getur
enzt betur en aðrir hlutar likamans.
Og hafi fólk á tilfinningunni að það geti
gert eitthvað sem er nokkurs virði og
hafi sig I að framkvæma það, eru allar
líkur til að andlega starfsemin eigi
sinn þátt I að auka hina llkamlegu
athafnasemi og heilbrigði.
6. Veriðhófsömllifnaðarháttum yðar.
Rannsóknir á fólki, sem nálgast 100
ára aldurinn, benda til þess að það
endist eins og það'hefur unnið til með
hófsömum og jafnframt nytsömum
lifnaðarháttum.
f
krifaðar upplýsingar
móti þeim um sömu
mót* þeim um sömu
slmallnur og flytja
samtöl.
Verkfræðingar Bell-
rannsóknarstofanna hafa gert
tilraunakerfi fyrir þetta. Með þvi er
hreyfing handar við skrift á borð skipt
niöur I „upplýsingabita” og þannig
sent. Eletrónísk móttökutæki taka við
upplýsingunum og setja á filmu, sem
samstundis er sýnd á stóru
sýningarspjaldi. Þetta gerist jafn-
óðum og skrifað er og nærri þvi jafn
hratt.
Þessa uppfinningu væri unnt að nota
til að ílytja bæði talað og ritað orð til
fjarlægra kennslustofa, ráðstefnusala
og skrifstofa. Með þvl mætti flytja
kennsluna heim til örkumla fólks eða
sjúks beint úr kennslustofunni.
*****
$**** arfuglarnir, sem nú eru
'4) komnir, taka mið af sól
F(K' og stjörnum á ferö sinni,
^ en sólar- eða stjörnu
áttavitinn þeirra
segir ekki alla söguna um
þeirra ótrúlegu ratvlsi. Enn eitt
kennileiti þurfa fuglarnir að hafa, og
nú virðist, að þeir styðjist við
segulsvið jarðar á leiðum sinum.
Tveir Vestur-Þjóöverjar, Roswitha
og Wolfgang Wiltschko I
dýrafræðistofnuninni I Frankfurt, hafa
rannsakað atferli farfugla.
Þeir segja, að fuglarnir taki ekki
mið af skautum jarðsegulsviðsins á
Noröur- og Suðurpól, heldur fari þeir
eftir.'aallastigi segulsviðslina. Hallinn
er breyíilegur eftir stöðum á jörðinni
og Þjóðverjarnir eru fullvissir um, að
með því geti fuglarnir vitað, hve langt
þeir séu sunnan eða norðan
miðbaugs.