Úrval - 01.07.1972, Page 89

Úrval - 01.07.1972, Page 89
SIÐUSTU DAGAR MUSSOLINIS 87 fjöBur. En þaö varö samt að hætta á þetta. SKorzeny pantaði .nú svifflugur þessar. Var þar um aö ræöa 12 flugvélar til þess aö draga svif- flugurnar og 12 venjulegar svifflugur. Hver sviffluga átti að bera 10 vopnaða menn, fallhlífarmenn eöa stormsveitarmenn Skorzeny. Þar aö auki var beöiö um litla könn- unarflugvél af geröinni Fieseler- Storch, en þaö var eina flugvélin, að undanskildum þyrlum, sem átti að geta lent á svona takmörkuöu svæöi. Gengi allt að óskum, mundi flugmaður litlu flugvélarinnar hafa mikilvægan farþega með sér i bakaleiðinni. Flugvélarnar og svifflugurnar hófu sig til flugs frá flugvelli nálægt Róm b. 12. september og komu til á- kvörðunarstaðar nálægt Monte Cor- notindi um klukkan 2 siödegis. Skorzeny var I fremstu svifflugunni. Virstrengurinn á milli dráttarflug- vélarinnar og svifflugunnar var nú leystur, en hann var 50 metra á lengd. Og þá hentist svifflugan skyndilega fram á við. Flugmaðurinn i svifflugunni virti gaumgæfilega fyrir sér landslagið umhverfis litla hjallann. Hann var mjög taugaóstyrkur. Einu ljósmyndirnar, sem flugmennirnir höfðu haft til þess að glöggva sig á staðháttum, voru ógreinilegar og aðeins tæpir sex þumlungar á hvorn veg. I öðru horninu vinstra megin sást gistihúsið eins og dökk klessa með hvitri steinsteyptri stétt framan við suöurhliðina. Landið umhverfis virtist hljóta að vera á tunglinu. Svo hrikalegt var það. En litill þrihyrn- ingur vestan viö gistihúsið táknaði engi, og hafði það verið valið sem liklegur lendingarstaður. Nú var þessi dökka klessa að taka á sig skýrari lögun. bar var um að ræða byggingu, sem var sem U i laginu. Svifflugan flaug skáhallt yfir hana i 450 feta hæð. Pinulitlir menn, sem virtust ekki stærri en maurar, streymdu nú út um aðaldyr gistihúss- ins. A þessu sama augnabliki sáu allir svifflugmennirnir þrihyrnda „engið” greinilega. Þessi kærkomna lend- ingarbraut þeirra, sem þeir höfðu álitið vera engi, var i rauninni helzta skíöabrekkan við gistihúsið! „SKJOTIÐ EKKI!” A þessu augnabliki sat Foringinn viö borð I herbergi nr. 201 i gistihúsi þessu. Hinum megin sat fjárbóndi þaðan úr nágrenninu, Alfonso Nisi að nafni. Fjórum dögum áður hafði öryggis- vörðurinn stungið upp á þvi við Nisi, að hann stytti Foringjanum stundir. Hann hafði samþykkt það, en var ekki allt of ánægður með það, þvi að honum fannst Foringinn óskaplega mis- lyndur. Annað veifið var hann argur og uppstökkur, en siðan varð hann óskaplega niðurdreginn. Maðurinn, sem Nisi sá sitja þarna andspænis sér, klæddan krympluðum, gljáandi jakkafötum, bláum að lit og slitnum og óhreinum skóm, hafði nú breytzt i vonlausan og örvæntingar- fullan smábónda, sem bölvaði ör- lögum sinum. Kvöldið áður hafði það verið tilkynnt, að Badoglio ætlaði að afhenda Bandamönnum hann, og um nóttina hafði hann gert misheppnaða tilraun til þess að skera sig á púlsinn á vinstri handlegg með rakvélarblaði. Svo hafði hann kallað á varðmann i flýti, sem hafði borið joð á skrámuna. Nisi hélt þvi fram, að hann gæti spáð fyrir um ókomna atburði. Og til þess að stytta Mussolini stundir fór hann að leggja spil á borðið og athuga þau síðan gaumgæfilega. Svo þegar flug-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.