Úrval - 01.04.1962, Síða 40
48
ÚRVAL
aldrei skiliS merkingu talna, þeg-
ar þær voru skrifaSar.
Uranie Diamondi áleit, aS hæfi-
ieiki hans til þess aS geta leyst
úr reikningsþrautum risavaxinna
talna, ætti rót sína að rekja til
þess, að hann „sæi“ tölurnar í lit-
um: núll = hvítt, 1 = svart, 2 =
gult, 3 = fagurrautt, 4 = dumb-
rautt o. s. frv. Coiburn „sá“ töl-
urnar fyrir sér, líkt og þær væru
skrifaðar með einhverri ósýni-
legri hendi. Hann sagðist bara
„lesa þær upp“.
Venjulega er hæfileiki þessi al-
gerlega eðlislægur. Svörin komu
algerlega sjálfkrafa og án hinnar
minnstu fyrirhafnar.
Við ræddum við hr. Paul Lid-
oreau, leðurvöruframleiðanda
nokkurn. Hann skoðar hæfileika
sinn næstum sem nokkurs konar
helgidóm og álítur, að eigi beri
að notfæra sér hann af rælni
einni. Hanh er 74 ára gamall,
kraftalega vaxiiin maður, kyrr-
látur og tilfinninganæmur.
• Réikningsþrautir voru lagðar
fýrir hann.
„Hver er þriðja rótin af
3.796,416?“
Hann varð undrandi á svip.
„Þetta er nú hlægilega létt... 156.
Fáið mér sextán eða sautján stafa
tölu til að glíma við. Þá er meira
gaman að því“.
„Upp á hvaða vikudag bar 20.
september árið 139 e. Kr.?“
„Venjulega fæst ég ekki við
slíka útreikninga, en veitið mér
samt augnabliks umhugsunar-
frest“.
Fimm sekúndum seinna nefndi
hann svarið: „Hann bar upp á
laugardag“.
„Hann sagðist „sjá“ tölur í
höfði sér. „Þær eru hvítar á svört-
um bakgrunni, þær koma og fara,
ósköp rólega . . . en samt svo
furðulega. . . . sko . . . alveg eins
og . . . hvernig ætti ég að orða
það? Já, alveg eins og hópur af
spörfuglum, sem þeytast fram og
aftur. Svo nema þær staðar . . .
og þar sé ég svarið fyrir mér.
Svo einfalt er það“.
Hann öðlaðist þennan hæfi-
leika, þegar hann var þriggja ára
gamall og var hvorki farinn að
lesa né skrifa.
„Hvernig gátuð þér talið?“
„Afsakið, herra minn, ég lærði
ekki að telja fyrr en nokkrum
árum síðar! Ég vissi það bara,
að tölurnar birtust skyndilega í
höfði mér“.
Hvernig er hægt að skýra hæfi-
leika þessa fólks í fáum orðum?
Einstaka sinnum erfa börn slíka
hæfileika frá öðru hvoru foreldra
sinna, og þeim hæfileika fylgir
stundum eitthvað annað afbrigði-
legt. Augu Inaudi opnast ekki á
eðlilegan hátt. Colburn hefur sex