Skírnir - 01.01.1882, Qupperneq 23
ENGLAND.
25
„Skírnir11 sagði frá því í fyrra, hvernig að fór á Irlandi, og
hvað Irar bárust fyrir bæði þar og á öðrum stöðum. A flestum
stöðum sló þar i róstur og bardaga, þar sem löggæzlu og at-
faraliðið varð að hlutast til á Irlandi, t. a. m. um handtökur
ymsra forsprakka og æsingargarpa, eða burtflæming þeirra leigu-
liða, sem synjuðu leigugjaldsins eptir fyrirlagi „landíjélagsins11.
I slikum viðureignum fengu margir skeinur og örkuml, og
sumir líftjón. þar sem slíkar atfarir urðu, heyrðist jafnan til
klukknanna i kirkjum og kapellum Ira, og var þeim hringt til
að kveðja sem mestan mannmúg saman til fyrirstöðu. þegar
fleiri og fleiri af forsprökkum bændafjelagsins voru teknir fastir,
fór að bæra meir á prestunum, að þeir stæltu almúgann upp,
og þó sumir yfirhirðanna eða biskupanna stilltu til friðar í
„hirðabrjefum“ sínum, þá tóku þeir flestir í þann strenginn í
ræðum sínum og í blaðagreinum, að þeir kváðust fallast á
sanngirnis- og sjálfsforræðiskröfur hinnar írsku þjóðar. í júní-
mánuði varð hörð samkoma með varðliði Englendinga og
bændum í Corkfylki, og urðu þar margir menn limlestir. Um það
leyti hafði Parnell líka sagt hreint og beint á þinginu, að
ymsum mundi blæða á írlandi; svo skyldu ráðherrarnir eiga
við búið. I byrjun júlímánaðar voru 200 af forsprökkum
bændafjelagsins settir í varðhöld, og tók þá að draga úr há-
vaðanum um stund. þann 12. þess mánaðar halda próte-
stantar — þau fjelög á Irlandi og Englandi, sem nefnast
Orangistafjelög, — hátíð í minning orustunnar við Boyne(fljót)
1690, þar sem Vilhjálmur þriðji (af Oraníu) sigraðist á her
Ira, og þeim þrotnuðu allar varnir. Nærri má geta, að Irar
hneyxlist á slíku hátíðarhaldi, og nú urðu þeir víða mjög upp-
vægir, þegar þeir sáu prósessíur og fánaburð prótestanta. Sum-
staðar lenti í grjótkasti, og í Belfast braut skríllinn niður eitt
skólahús prótestanta. Mönnum hafði lengi leikið grunur á,
að landeignafjelagið eða bændafjelagið væri í rauninni ekki
annað enn önnur röndin — hin sýnilega og meinlausari —
á nýju allsherjar Feníasamsæri, sem vænti sjer enn mesta styrks
frá Vesturheimi, og þetta fór líka að verða æ berara. Tveir
menn írskir reyndu að hleypa í lopt upp, ráðhúsinu í Liverpool;