Skírnir - 01.01.1882, Síða 115
DANMORK.
117
ráð fyrir gert, að hann verði afhjúpaður á fæðingardag hans í
sumar komanda. — 11. júlí dó Vilhelm C. S. Topsöe, rit-
stjóri þess blaðs, sem heitir „Dagbladet“ og einna mest er
metið af blöðum hægri manna. Topsöe var vel að sjer og
einn af beztu rithöfundum Dana. Auk ferðasögu frá ferð hans
í Ameríku (Bandaríkjunum norðurfrá), sem snúið var á ensku,
og þótti ágætlega samin, hefir hann samið nokkrar skáldsögur
— „Jason med det gyldne Skind“, „Fra Studiebogen11 og
„Nutidsbilleder11 — og hafa þær allar aldarblæ seinni tíma,
einkum hin fyrst nefnda, en eru taldar með enu bezta sinnar
tegundar á Norðurlöndum. Topsöe var islenzkur i móðurætt.
— Sama dag andaðist listakonan Elisabeth Jerichau-
Baumann, sem hefir orðið allfræg fyrir uppdráttarlist sína og
litmyndir. Hún var gipt myndasmiðnum Jerichau prófessor,
sem hún hafði komizt í kynning við í Rómaborg. Hún var
fædd á Póllandi af þýzkum foreldrum, og henni var mart
þaðan í barnsminni frá uppreisnartimunum (1829). Ein af
uppdráttarmyndum hennar nefnist „Finis Poloniæ“ (endir Pól-
lands). Hún ferðaðist viða um Evrópu og tók sjer mart til
efnis á þeim ferðum, t. d. í Miklagarði, þar sem hún fjekk
leyfi til að hafa kynni við konur soldáns í kvennabúrinu. Af
ferðum sínum sagði hún á stundum fjörlega og fróðlega í blöð-
um eða ritlingum. Tveir af uppdráttum hennar voru eptir
íslenzku efni, og hjet annar „En Islænderinde11, en hinn tákn-
aði Hallgerði langbrók. Ena fyrnefndu mynd keypti Viktoría
Bretadrottning. — 27. ágúst dó Hans Andersen Krúger á
Bevtoft, hinn tápmikli forvígismaður fyrir dönsku þjóðerni og
þjóðernisrjetti í Sljesvík. Hann hafði þá tvo um sextugt.
Meðan Danir fylgja dæmi hans i Sljesvík í þjóðrækni og föður-
landsást, þá verður þjóðerni þeirra seigt fyrir, hvað hart sem
þjóðverjar knýja. Hann var harmdauði allri alþýðu manna í
Danmörk, og i heiðurs skyni komu nefndir manna til útfarar
hans frá Kaupmannahöfn og flestum bæjum öðrum, með blóm-
sveiga, silfurskjöldu og annað líkkistuskrúð. Við útförina voru
staddir 3,000 manna. — 4. september dó Caspar Vilhelm
Smith, kennari i slafneskum málum við háskólann í Kaup-