Skírnir - 01.01.1882, Síða 137
BANDARÍKIN (norðurfrá).
139
getið, að sá maður hafði tekið við utanríkismálum afBlaine fyrir
árslok, sem Frelinghuysen heitir, og menn ætla muni taka linara
á, þar sem komið er við frumrjett Bandaríkjanna á meginlandi
Ameríku, þó sömu stefnu verði haldið.
þegar svo hafði sorglega hent, sem að framan er frá sagt,
voru engir sem tóku eins mikinn þátt í raunum Bandaríkja-
fóllcsins, og lýstu þvi eins alúðlega, og frændur þess á Eng-
landi. Drottningin sjálf sendi konu Garfields huggunarkveðjur
og bestu óskir, og sama fór á milli ráðherra utanrikismálanna
í Lundúnum og Washington. Enn fremur sendi drottningin
fagran og mikinn blómsveig að leggja á kistu forsetans við
útförina. Slíkt var mjög með þökkum þegið þar vestra, og
menn lýstu því þakkarþeli sem bezt við þá hátið sem var
haldin 19. október í minningu þess sigurs sem Washington,
foringi Bandaríkjahersins, vann á hershöfðingja Englendinga,
Cornwallis lávarði í Yorktown þann dag fyrir 100 árum. Lá-
varðurinn hafði búið sjer góða vígstöð í borginni, og hafði þar
8000 hermanna, en Washington sótti að með 16,000 manna,
og voru af þeim Frakkar 7000. Umsátrið byrjaði seint í sept-
ember, en um mánaðarlokin höfðu Englendingar gefið upp hin yztu
vigi. Eptir það ljet Washington herða sóknina, en hinum
veitti þyngra með hverjum deginum. 16. október ljet Corn-
wallis liðið renna út að brjóta af sjer herfjötrana, en menn
hans urðu að hörfa inn aptur við mikið mannfall. Daginn
eptir sendi hann Washington boð, og leitaði friðarkosta, en
það eina fjekkst, að hann varð að gefa upp borgina og ganga
Washington á vald með allan her sinn. þetta var síðasta
þrautin, sem Bandafylkin þurftu að vinna til skilnaðar við
England og fulls sjálfsforræðis. Við hátíðarhaldið heiðruðu
menn svo með skotkveðjum og öðrum virktum enska fánann,
sem væri hann bróðir stjörnumerkisins (merkis Bandaríkjanna),
og Ameríkumenn höfðu þá Englendinga, sem við voru staddir,
i sömu hávegum sem Frakka, bandamenn sína í frelsisstríðinu.
En fremur minntist forsetinn á það i þingsetningar ræðu sinni
(i byrjun desembermán.), að vinfengi frændþjóðanna hefði aldri
verið betra enn nú. — 1 Yorktown á að reisa minningarvarða