Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 65
69
Yfirborð básanna var yfirleitt óskemmt og nokkuð jafnt, en þó
víðast lægra í miðju. Var það úr mold eða torfi og svart ofan eftir
eldinn (svarta röndin), líkt og sviðið. Þar ofan á var svo kola- og
öskulagið óhreyft. í sumum básunum virtist greinilega vera brunnið
hey eða salli.
Ef spurt væri um þak þessa fjóss, yrði ekki greitt um svör. Helzt
er þó að ætla, að það hafi verið gert upp að langmestu leyti með
íslenzku birki, sennilega með ás og reft á veggjabrúnir. Hugsanlegt
væri, að auk þessa hefðu verið hliðarásar, til þess að hægt væri að
komast af með styttri rafta. En auðvitað hljóta að hafa verið ein-
hverjar stoðir undir ásunum, því að lengd fjóssins er mikils til um of
til þess að þeir mætti vera stuðningslausir frá enda til enda. Annars
er rétt að hafa sem fæstar getgátur uppi um þetta atriði. En víst er að
tróðviður mikill hefur verið í þakinu og mikið af þeim koluðu skógar-
hríslum eða kvistum, sem í brunalaginu voru, munu vera úr því.
Minna brunalagið var bersýnilega undan litlu húsi, er staðið hafði
sunnan við fjósið vestast. Það afmarkaðist mjög skýrt af hinni svörtu
rönd og varð breidd þess av. um 3,30 m, en lengdin ns. um 4 m.
Þak þess hefur vafalaust snúið öfugt við þak fjóssins. Um allt þetta
brunalag voru kolaðir raftar þvers og langs, hver um annan þveran,
og aska gráleit og rauðleit umhverfis. Annars voru engin kennimerki
um, hvers konar hús þetta hefur getað verið, en eðlilegast er að gera
ráð fyrir, að það hafi verið dálítil hlaða. Ekki varð séð, hvar dyr höfðu
verið nema ef vera skyldi, að tunga sú, sem er suður úr brunalaginu
syðst og vestast, gefi bendingu um, að þarna hafi verið innangengt
milli húsanna.
í hvorugu brunalaginu fannst nokkur forngripur af neinu tagi.
Ekki er að efa, að brunarúst þessi er mjög forn. Sést það af því,
að hún er elzt og neðst allra mannvistarleifa á þessum stað, og alveg
niður á sandi þeim, sem er undir moldinni á bæjarhólnum. Þá er
hún einnig eitthvað eldri en skálinn, sem byggður hefur verið á sama
stað. Ekki væri ólíklegt, að skálinn hefði verið byggður 50—100
árum eftir fjósbrunann. En skálarústin er fornleg og hlutir þeir, sem
í henni fundust, benda á háan aldur, t. d. hlutirnir tveir úr glimmer-
skífer, en sá steinn virðist hafa verið fluttur inn sem efni í kvarnar-
steina á fyrstu öldum hér á landi og hefur áður fundizt þar sem byggð
lagðist af þegar í fornöld, t. d. Tröllaskógi á Rangárvöllum. Þótt