Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Page 126
128
honum, eru húsarústir fjórar, samanbyggðar og svo stórar, að vel
gátu hæft hverju meðalbýli. Vegna þess hefi eg leyft mér að tölusetja
þær sem sjálfstætt býli, annað hvort í bróðerni með búendum á
Hrappsstöðum eða á eftir þeim. En mögulegt er þó, að þarna hafi
verið einhver útihús frá stóra býlinu, og þá helzt peningshús. Varla
smiðja og því síður útibúr eða útieldhús, nokkur hundruð metra í
burtu. Gróið er hér og óblásið, eins og á hinum staðnum. Húsin hafa
staðið saman nálægt því í ferhyrning, tvö framar og tvö að baki.
Fremri húsin sýnast jafnvíð inni, 9 fet, og lík að lengd, 24—26 fet,
en þó tekur vestra húsið nærri 2 faðma lengra fram með þykku gafl-
hlaði og þykkur veggur á milli. Dyr sýnast vera sunnan á báðum, en
austan á eystra bakhúsinu (12X15 fet), og húsin öll aðskilin með
þykkum veggjum tvöföldum. Hitt bakhúsið sýnist um 13 fet á lengd
og 6 á vídd og líklega innangengt í það, en dyr ekki sýnilegar. —
Hér ætti líka að grafa út rústirnar, ásamt fjósrústunum. Kynni þá
einhvers staðar að koma í ljós smiðjan, sem nesið er kennt við, og
hvort þetta hafa ekki verið tvö býli sjálfstæð, fremur en eitt og hið
sama.
Telja má víst, að býlin á Hrappsstöðum og Smiðjunesi hafi lagzt í
auðn mjög snemma á öldum. Og ef nokkuð hefir blásið upp þar í
kring frá ánni, þá er það fyrir löngu gróið upp aftur. Líklegra er, að
byggðin hafi horfið þaðan af öðrum ástæðum. Bærinn stóð á lágum
stað, þar var þröngsýni og sólarlaust nærri hálft árið. (Reynifell er
mikið fjær Þríhyrningi að norðvestanverðu norðan í hárri öldu, og
sést þar ekki sól í 14 eða 15 vikur). Jarðvegur mun alltaf hafa verið
grunnur og þyrrinn, og túnið því snögglent og misbretasamt.
24. Holt. Svo hefir verið nefnd grjótdreif mikil, sem sýnilega er
leifar af bæ, þótt ekki móti þar neitt fyrir húsaskipun. Þetta er í blásnu
hrauni suðvestanundir enda á langri og stórri öldu, sem nú er kölluð
Reynifellsalda, en vel gat heitið Holt að fornu fari.
Fiská rennur milli öldunnar og Þríhyrnings, og er undirlendi þar við
ána næsta lítið á báðar hliðar. Smiðjunes er na. við ölduna. Liggur hún
því öll á milli nefndra bæjarstæða, og það langt milli, að vel gátu báðir
þeir bæir verið í byggð samtímis. — Reynifell er nú norðan í sjálfri öld-
unni, og er bær sá byggður fyrir 1330 (Þorleifsstaðir fyrir 1270). Varla
hefir Reynifell verið byggt fyrr en annað eða bæði býlin, Holt og Smiðju-
nes, voru lögð í eyði, og mun það byggt upp úr landi Holts fremur en
hinna býlanna, er nú teljast til Þorleifsstaðalands.
Líklegt er, að vikur og blástur frá Fiská ásamt eyðing skógar og hrís-