Fylkir - 01.05.1920, Blaðsíða 16
16
þá úr steinsteypu; en það áleit liann, eins og fleiri læknar, alveg
nauðsynlegt, þó ekki væri til annars, en að stemma stigu fyr,r
útbreiðslu tæringar og skyldra sjúkdóma. Aðrir læknar hafa geng'
ið lengra og ráðið bændum til að brenna öll fjós, sem bygö
væru úr torfi, til að fyrirbyggja útbreiðsiu sóttkveikja frá kúnun1'
Líklega mundi þess þá ekki langt að bíða, að fjárhúsin fserl1
sömu leiðina, einnig vegna berklahættu, og bændur yrðu að
byggja húsin öll úr steinsteypu eða timbri, þó að kostnaður við
byggingu bæarhúsa yrði 12 þús. kr. og þar yfir og kostnaðu'
fjósa og fjárhúsa 25 — 30 þús. kr. til jafnaðar, eða alls 6-fah
hærra en O. H. reiknaðist til. Óþarfi er að fara lengra út í þessa
reikninga; hver sveitabóndi mun sjá sína sæng uppreidda, el
þess konar sveitabyggingar ættu að verða almennar; sný eS
mér heldur að því, sem mér virðist vera hendi nær og frarn-
kvæmanlegra, en það er að nota íslenzkt byggingarefni sem al!ra
mest eða alveg og útlent byggingarefni sem minst eða alls ekki;
að það sé mögulegt held eg auðvelt að sanna án niikilla mála-
lenginga.
Ferðir mínar um landið, einkum hér norðanlands, hafa sann-
fært mig um þetta. Eg hef séð í Suður-Pingeyarsýslu bæi bygða
úr alíslenzku grjóti, hraungrýti, móbergi og grágrýti; úr hraun-
grýti við Mývatn og einnig í Bárðardalnum og úr móbergi a
Pverá í Laxárdal og á Orenjaðarstöðum og viða í Aðaldal og
Reykjadal. Allar þessar byggingar voru snotrar og varanlegar að
sjá og hlýar, að því er mér var sagt; hentara og ódýrara bygg'
ingarefni fyrir þær sveitir er víst örðugt að fá, því alstaðar er
hraun umhverfis húsin, enda eru flestar girðingar og því u®r
öll hús hlaðin úr hraungrýti. Bærinn Stóruvellir í Bárðardal el
bygður úr höggnu grágrýti teknu þar úr fjállinu. Hólakirkja 1
Hjaltadal er, eins og flestir vita, bygð úr rauðum steini úr Hóla-
byrðu, tilhöggnum. Hún er nú enn óhögguð, þrátt fyrir sinU
háa aldur og marga jarðskjálfta, en það mun óvanalegt, að torf-
bæir séu til eldri en 150 ára gamlir, og óiíklegt, að timburhus
eða vanaleg steinsteypuhús standi svo vel. Af þessum dæmun1