Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1888, Blaðsíða 62
62
um að velja, því jeg er nú orðinn þjer samdóma
um það, sem okkur hefir aldrei hingað til komið
saman um. Jeg skrifaði þjer ásamt fleiri kunningj-
um og verndarmönnum í fyrra haust, en í vor fjekk
jeg öll brjefin aptur frá austurlandinu, hvert þau
höfðu komið of seint, svo að skipið var áður farið,
og vildi mjer þetta einna verst til, því jeg hafði
þar skrifað þjer mart og beðið þig um mart, sem
mjer lá nærri lifið á..................................
Engin skip hafa enn í ár komið frá Danmörku
nema Oríon, sem kom í vor með skemt kaffe, fúið
tóbak o. s. frv. Jeg er nú ferðbúinn norður í land.
Margir hafa veitt mjer lið; einna mest er jeg, að
fráteknum Sra. Arna, skuldbundinn Sra. Steingrími,
hvers velvild gengur fram yfir öll takmörk; hann
gaf mjer dágóðan reiðhest og fóðraðihann í vetur,
þó heldur væri þröngt um fóður hjá honum.........
Af öðrum frjettum skrifa jeg þjer einasta þessar :
Skömmu fyrir jóiin Ijek jeg magisters Stygotii
persónu í Jakob von Thybo, í búningi sýslumanns
Sigurðar Pjeturssonar, og þótti mönnum jeg ekki
gera það svo fávíst. Eptir jól hjá Sra. Árna hefi
jeg verið að kenna piltunum lijá honuin engelsku,
þýzku, geographí og seinast ofurlítið í grísku; á
milli þeirra vóru þrír synir amtmannsins á Hvítár-
völlum og einn sonur konferensráðsins fyrir norðán1-
1) J>eir sem hjer er átt við, munu vera: Magnús, síðar
sýslumaðnr í Skaptafellssýslu og Rangárvallasýslu, faðir lands-
höfðingja Magnúsar Stephensens og þeirra systkina, Pjetur,
síðar prestur á Olafsvöllum, og Hannes, síðar prófastur á Ytra-
hólmi, synir Stefáns amtmanns Stephensens, og Lárus Thórar-
ensen, síðar sýslumaður í Bnni, sonur Stefáns amtmanns Thór-
arensens á Möðruvöllum. Auk þess munu þá hafa verið hjá