Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1888, Blaðsíða 85
85
10.
Kaupmannahöfn 27. apríl 1810
Nú hvað framvarpið1 2 snertir, þá er sjálfsagt að ein
hafið þjer sannmæli fram borið, en eigi að síður trúi
jeg því, að færi muni gefast til prentunar slíkra
bóka, þá er fram líða stundir, annaðhvort úti þar
eða hjer, því að lítill mun það ábati að halda prent-
verki einkum vegna sinna rita einna, og mun hanri*
þvi fegins hendi annara prenta láta, engu síður þó
óspillt skyli vera. J>að væri að mínum dómi mikill,
sármikill missir íslandi, ef prentverkið skyldi niður
leggjast, hvað mig uggir að annars kynni að henda.
En hvernin sem fer með þetta, þá lízt mjer auðsætt,
að fræðiverk muni kaupast að3 nógri mergð, ef því-
lík bók sem Sveins Sölvasonar Barn í lögum hefir
getað verið tvisvar útgefin, og er hún þó, hvað mál-
færið snertir, að mínum dómi eitthvað hið vesælasta4,
er ritað hefir verið á íslenzku, en innihaldinu við-
vikjandi, að dómi Bjarna5 okkar, næstum því ein-
tómur hjegómi af rómverskum rjetti og því líku, ó-
nýtur íslenzkum embættismannaefnum...........
Ef jeg skal segja með einlægni og opinlyndi, hvað
jeg þykkist mega finna að yðar brjefi eða málfærinu
1) Sjá næsta hrjef á undan. Svo er að sjá, sem Urímur hafi
sagt í brjefi til Rasks, að ekki væri unnt að fá neitt prentað
á íslandi, sakir þess að Magnús Stephensen hefði prentsmiðj-
una á valdi sínu. Útg.
2) J>. e. eflaust Magnús Stephensen. Útg.
8) þannig.
4) J>ó skemá undan skyldi taka reikningsbók Ólafs Ólafsson-
ar og í fremsta rúmi það nýja N. Testamenti, en þessu vona
jeg hann Árni muni bótum á valda. (Athgr. Rasks).
5) o: Thorsteinssonar. Útg.