Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Page 1
Peningar.
Eptir Indriða Einarsson.
I.
Eginlegleikar peninga, gildi, verð-alin.
Peningar eru varan sem bankar og sparisjóðir
verzla með, og er meðal annars þess vegna nauð-
synlegt að fá lítið yfirlit yfir eðli þeirra. Pening-
arnir eru flestum kærir; mönnum þykir illt ef þá
vantar, og þeim gengur flest í hag sem þá hafa.
Ein grein af framförum heimsins er að menn fundu
þá upp. Menn fróðir um þjóðmegun hafa sagt, að
þeir væru olían sem borin væri á verzlunarvjelina,
og er það vel að orði komist. Adam Smithsemer
talinn faðir allra þeirra fræða, hefur sagt um þá,
að peningarnir væru vegirnir, er allt viðskiptalífið
færi eptir, en þeir væru að því leyti hentari, að þeir
væru fyrirferðarlausir, og eins og vegirnir væru,
yrðu þeir lagðir i lopti uppi.
Hvað eru peningarnir í rauninni, þeir eru gildi,
og að eins gildi. Allar vörur sem ganga kaupum
og sölum, fullnægja einhverri sjerstakri mannlegri
þörf. Peningarnir gjöra það ekki. enginn borðar
gullpening, enginn drekkur hann, enginn getur klætt
sig í hann. Smalastúlkan getur ekki einu sinni
haft hann í bót fyrir skóinn sinn. þ>ó fæst fyrir
Tímarit hina íalenzka Bókmenntafjelags XI. 8