Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Page 99
211
með samhljóða atkvæðum („laudabilis unanimi con-
sensu“); varkandidat á Friðriks-spítala í Kaupmanna-
höfn þangað til um vorið eptir, er hann fór alfar-
inn til íslands; hafði honum um veturinn ájóiaföstu
(17. desember i8ig) verið veitt landlæknisembættið
ásamt hjeraðslæknisembættinu í Borgarfjarðar-, Kjós-
ar- og Gullbringusýslu (konungs úrsk. 11. des.
181 q). Hann tók við af Oddi Hjaltalín 1. júní 1820;
iq. marz 1842 var honum veitt jústítsráðs nafnbót;
var varaþingmaður 1843 og mætti á alþingi 1847
og 1849; sæmdur Doktorstitli (Dr. phil. et artium
liberalium magister) af háskólanum í Marburg 28.
marz 1847; var alþingismaður Reykvikinga 1853;
var fjelagi margra útlendra lærdómsfjelaga. Hann
kenndi á yngri árum sínum nokkrum ungum mönn-
um lítið eitt i lækningum, og lærðu hjá honum
Bjarni Eggertsson síðar prestur í Garpsdal og Jón
Hjaltalín, er síðar varð landlæknir. Hann andaðist
í Reykjavík 15. febrúar 1855 (fannst örendur í sófa
sinum). Hann bjó fyrst i Nesi við Seltjörn, en með
kgs. úrsk. 13. marz 1833 var honum leyft að flytja
til Reykjavikur; byggði hann þar hús („Doktors-
húsið“, nú eign Markúsar kennara Bjarnarsonar) og
bjó i þvi til dauðadags.
Kona hans var Elín Stefánsdóttir amtmanns
Stephensens (-j- 4. júni 1887).
Æfiminning Jóns forsteinssonar er prentuð 1856
i Kaupmannahöfn.
5. Jón Jónsson Hjaltalín, fæddur i Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd 21. april 1807, sonur Jóns Odds-
sonar Hjaltalíns, prests að Saurbæ og síðast að
Breiðabólstað á Skógarströnd, og Gróu Oddsdóttur,
prests að Reynivöllum i Kjós, þorvarðssonar. Hann
kom um haustið 1825 í Bessastaðaskóla og var þar
14*