Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Blaðsíða 5
Landsbókasafnið 1950-1951
Ritauki
Bókagjaíir
Bókaeign Landsbókasafnsins er nú talin um 185400 bindi prent-
aðra rita. Arin 1950—1951 varð ritaukinn svipaður eða lítið eitt
meiri en tvö síðustu ár á undan, urn 8400 bindi, þar af gefins, auk skyldueintaka, rúm-
lega 1600 bindi. Rétt er að geta þess, að bindatalan í heild er ekki nákvæm og mundi
reynast talsvert hærri, ef allt væri talið. Það er eitt af verkefnum þeim, sem fyrir
liggja, að kanna til hlítar bókaeign safnsins, greina á milli smárita og stærri bóka, at-
huga tölu tvítaka o. s. frv. En þessu verður ekki við komið fremur en ýmsu öðru, sem
úrlausnar bíður, fyrr en eitthvað greiðist úr húsnæðismálum safnsins.
Safninu hafa borizt bækur í gjöfurn og bókaskiptum úr ýmsum
áttum eins og að undanförnu. Úr búi Guðmundar Finnbogason-
ar, fyrrum landsbókavarðar, hefir ekkja hans, frú Laufey Vilhjálmsdóttir, gefið safn-
inu um 100 bindi, flest heimspekilegs efnis. Frú Hildur Blöndal, ekkja Sigfúsar Blön-
dals bókavarðar, gaf úr bókasafni manns síns á annað hundrað bindi um tónlist, auk
handrita, sem síðar verður getið, og einnig góðan safngrip, einkaeintak Guðbrands
Vigfússonar af orðabók þeirri, sem kennd er við hann og Cleasby, með ýmsum hand-
rituðum athugasemdum Guðbrands sjálfs, en eintak þetta hafði verið í eigu Sigfúsar
Blöndals. Gunnar R. Hansen í Kaupmannahöfn, sem áður hafði gefið safninu ýms
merk eiginhandarrit Jóhanns skálds Sigurjónssonar, hefir gefið nokkur prentuð eintök
af leikritum hans, sem verið hafa í eigu ekkju skáldsins og flest árituð til hennar. Með-
al þessara rita er frumútgáfan af Fjalla-Eyvindi. En lokaþætti þeirrar útgáfu var breytt
og upplagið eyðilagt, svo að þetta er afar fágæt bók. í sumum þessara eintaka af leik-
ritum Jóhanns eru útstrikanir og lagfæringar nreð hendi skáldsins sjálfs, og er þetta
því mjög merk gjöf og kærkomin. Þá hefir Miss T. Hermann í Winnipeg gefið nokkrar
nótnabækur, sem verið hafa í eigu Péturs Guðjónssens organleikara, og eru flestar
þeirra með áritun til hans frá vinum eða kunningjum. Sýnir þessi gjöf ræktarþel ís-
lendinga vestanhafs, sem Landsbókasafnið hefir oft notið á ýmsan hátt.
Sendiráð erlendra ríkja í Reykjavík, upplýsingaskrifstofa Bandaríkjanna hér og
British Council í London hafa drjúgum stutt safnið með bóka-, blaða- og tímaritagjöf-
um. Svenska instilutet för kulturellt utbyte med utlandet, sem hélt hér sýningu á