Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Blaðsíða 151
LÝSING O G SKÝRING Á L B S. 2574 — 2575 8vo
151
sennilega mjög snemma hafa komizt í ættatölur og aðrir síðan haft þá skekkju eftir.
Hallgrímur var Þorsteinsson eins og bréfabók Guðbrandar biskups ber vitni. Þá er
hin skekkjan sú, að móðir Jóns lögmanns Sigmundssonar er hér talin Sólveig Björns-
dóttir ríka Þorleifssonar, en bún var Sólveig Þorleifsdóttir, systir Björns ríka. Á 94.
blaði er rakin ætt Jóns landfógeta í Viðey Skúlasonar til Sveinbjarnar Súðvíkings og
ætt Ragnhildar konu Magnúsar sýslumanns Ketilssonar til Lopts ríka Guttormssonar.
Við þessar ættatölur hefur ýmsu verið bætt í handritið með annarri hendi en höf-
undar.
Á annarri síðu 95. blaðs er rakin föðurætt Guðmundar hreppstjóra á Finnastöðum
í Eyjafirði Hallgrímssonar og voru þeir frændur hann og höf., að 4. og 5. Hann rekur
þar ætt Guðmundar til síra Sigurðar í Goðdölum Jónssonar, sem hann segir að hafi
verið bróðir Bergljótar konu Jóns Sigfússonar á Urðum, en faðir þeirra hafi verið
síra Jón í Laufási Sigurðsson, bróðir Sigríðar konu Olafs biskups Hjaltasonar. Núlif-
andi ættfræðingar hafa borið brigður á það, að þau væru systkin Sigríður biskupsfrú
og síra Jón.
Höf. telur konu síra Jóns í Laufási réttilega Halldóru dóttur Þorbergs sýslumanns
Bessasonar, en Bessa telur hann Hrólfsson, og er það rangt. Halldóra Þorbergsdóttir var
varla dóttir Helgu Sigurðardóttur konu Þorbergs Bessasonar, með því að þá hefðu þau
síra Jón verið þremenningar, og svo skyld hefðu þau varla mátt eigast í þá daga.
Á 96. blaði er rakin föðurætt móður Guðmundar á Finnastöðum. Er það endurtekn-
ing á því, sem segir á 62. blaði, og sömu rangfærslurnar, en aðeins nokkru fyllra í frá-
sögn. Á sama blaði er móðurmóðurætt Guðmundar rakin. Koma þar enn saman ættir
hans og höfundar í 5. lið. Hér er enn sama skekkjan sem á 88. blaði um konu Bjarna í
Skriðu Pálssonar, en utanmáls er þetta leiðrétt hér. I framhaldi af ættrakningu þessari
er gerð grein fyrir Svalbarðsbræðrum á 97. blaði og síðar Guðrúnu Árnadóttur konu
Jóns sýslumanns á Grund Björnssonar. Þar er rangt hjá höf., að Guðrún hafi síðar átt
Jón í Galtardalstungu Ólafsson. Kona Jóns þess, sem venjulega er kenndur við Svarfhól
í Laxárdal í Dalasýslu, var hálfsystir Guðrúnar konu Jóns á Grund, eldri en hún og
óskilgetin.
Á annarri síðu 97. blaðs hefst ættartala síra Þorsteins Ketilssonar, og er hún rétt
það sem hún nær. Margt í henni hefur verið skráð fyrr en hér, en þó kann að vera, að
höf. hafi haft munnlegar heimildir niðja síra Þorsteins fyrir ýmsu. Utanmáls og inn í
meginmálið hefur smávegis verið skrifað með annarri hendi en höfundar.
Á 99. blaði er rakin móðurætt Þóru konu Ólafs bónda á Öngulsstöðum Sigfússonar.
Þessi ætt er án efa fyrst skráð hér og rakin eftir munnlegum heimildum Þóru sjálfrar
eða ættingja hennar. Hún var dóttir Guðlaugar Jónsdóttur bónda á Uppsölum á Staðar-
byggð Hákonarsonar, en Jón var ættaður úr Skagafirði. Hann er 1703 27 ára lausa-
maður í Klauf á Staðarbyggð og Þóra kona hans, sem var Hallsdóttir, er þar þá einnig
húskona 28 ára. Sighvatur bróðir Jóns, sem hér er nefndur, er 1703 21 árs vinnumað-
ur á Bjarnastöðum í Hólahreppi í Skagafirði. Guðmundur bróðir þeirra er þá nauta-
maður á Hólum. Hákon faðir þessara bræðra mun hafa verið sá, sem 1664—1666 býr