Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 14
íslenska varpfugla í Náttúrufræðingn- um á árunum 1952— 1957, en þær greinarurðu 15 talsins. Þáskrifaði hann smápistla í dagblaðið Tímann á ár- unum 1956—57, er nefndust Lífið í kringum okkur, en þeir urðu 40 alls. Finnur var alla tíð mikill bókasafnari. Hann sótti bókauppboö og var þekktur meðal bókamanna. Náttúrugripasafnið naut góðs af kunnáttu hans á þessu sviði, og er stofnunin, að mínu áliti, allvel búin bókum og tímaritum um dýrafræðileg efni en þó sérstaklega um fugla. Finnur var sjálfur búinn að viða að sér góðum bókakosti um fugla áður en hann réðst til safnsins. Hann minnt- ist þess oft að hafa gert sérlega góð kaup á bókum upp úrsíðari heimstyrjöldinni, t.d. i Danmörku og Englandi. Auk jaess átti hann margar góðar bækur og sér- prentanir frá föður sínum og afa. Hann seldi Náttúrugripasafninu safn sitt af náttúrufræðiritum árið 1955, en þar voru mörg þýðingarmikil fræðirit, sem væri erfitt og kostnaðarsamt að fá í dag. Sjálfur safnaði hann bókum um hin og þessi efni alla sína tíð, en einkum lagði hann rækt við bækur um íslenska fugla, ferðabækur og landlýsingar. Mun það með bestu söfnum sinna tegunda i einkaeign hérlendis. Náttúrugripasafn- iö eignaðist mikið af ritum sem Finni áskotnaðist fyrir kunningsskap við fremstu náttúrufræðinga heims, ókeypis eða fyrir lítið fé. Hann var heiðursfélagi Jourdain Society, Dansk Ornithologisk Central, Ornithologischer Verein zu Hamburg og World Pheasant Associa- tion. Hann var kjörfélagi í British Ornithologists’ Union, American Ornithologists’ Union og Dansk Ornithologisk Forening, en ritnefndar- fulltrúi franska ritsins Alauda. Fékk hann mörg tímarit ókeypis, og runnu þau ávallt til safnsins. Finnur var gerður að heiðursfélaga World Wildlife Fund, og Bernhard Hollandsprins veitti honunt orðuna Knight of the Golden Ark, hvorttveggja fyrir störf að nátt- úruverndarmálum, og mun Þjórsár- veramáliö hafa vegið þar joyngst. Finni þótti sérstaklega vænt um orðuna, en samtimis honum fengu sama heiður nokkrir aðrir, t.d. Max Nicholson og Julian Huxley, báðir heimsfrægir vís- indamenn. Þá voru Finni veitt tvö stig hinnar íslensku Fálkaorðu. Eins og þessi upptalning sýnir, var Finnur vel metinn á alj^jóðavettvangi, og átti marga af kunnustu vísinda- mönnum heims að persónulegum vin- um. Fjöldamargir erlendir menn, sem sóttu Island heim, nutu greiöasenri og þekkingar Finns á landinu og náttúru þess. Ariö 1941 kvæntist Finnur Guðríði Gisladóttur, Svcinssonar aljúngismanns og sendihcrra. Guðríður lést í ágúst 1978, og var [jað mikið áfall fyrir Finn, sem þá var búinn að heilsu. Þau Guð- riður eignuðust tvær dætur, Hclgu, sem búsett er í Reykjavík, og Guðrúnu, sem búsett er í London. Finnur Guðmundsson var heims- maður og mikill gleöimaður. Hann gat verið mjög fyndinn, ef svo bar undir, og kryddað vel, ef sá var gállinn á honum. Síðustu árin átti hann við mikla van- heilsu að stríða og vitaö var að hverju stefndi. Hann virtist taka jsví með óvenjulegri sálarró. Sló hann oft á létta strengi viðvíkjandi sjúkdómum sínum, oft fulllétta að mér fannst. Það er einnig óhætt að segja, að Finnur hafi orðið fyrir talsverðu áfalli, er hánn lét af störfum í árslok 1977 hjá 92
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.