Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 157
til haga nákvæmum tölum um fjölda
æðarhreiðra ár hvert, ásamt upplýsing-
um hvenær talið var og hvort varpið
hafi verið snemma, seint eða í meðal-
lagi. Eins og taflan sýnir, virðast hafa
orðið allmiklar breytingar á fjölda
hreiðra í eyjunum. Á Flatey fundust
flest hreiður árið 1967 (a.m.k. síðan
1964), eða alls 290. Æðarfuglar byrja að
setjast upp í vörpin á Flatey kringum 10.
maí. Fyrstu hreiðrin með eggjum fund-
ust 19.5. (1975), 12.5. (1976) og 10.6.
(1977). Fyrstu ungarnir sáust á sjó upp
úr 10. júní.
Þ. 29.6. 1976 var gerð talning á full-
orðnum æðarfuglum og ungum við
Flatey. Voru að meðaltali 2.9 ungar á
hverja kollu með unga, en 1.7 ef unga-
lausar kollur voru taldar með. Þá var
41% kvenfugla án unga. Önnur talning
var gerð 13 dögum síðar. Þá voru 2.5
ungar á hvern kvenfugl með unga, en
1.3 að ungalausum kollum meðtöldum,
en 49% kvenfugla voru án unga. Þessar
tölur benda til mikilla affalla á fyrstu
vikunum eftir að ungar koma á sjó, enda
fundusl litlir dúnungar dauðir um allar
fjörur á þessum tíma.
I seinni hluta júní hverfa blikarnir
burt frá varpstöðvunum og fara í
fjaðrafelli. I talningunum hér að ofan
voru blikar aðeins 7% allra fullvaxinna
fugla, sem sáust.
Toppönd (Mergus serrator): Toppendur
eru og hafa verið sjaldgæfar á þessari
öld. R.H. getur þeirra ekki, Finnur
Guðmundsson (skammstafað F.Guðm.
hér eftir) sá tvær árið 1942, og Jón
Bogason segir þær hafa verið afar sjald-
gæfar á sínum árum í Flatey. Flestar hef
ég séð 3 toppendur saman og fundið eitt
hreiður (á Flatey 1974). Líklega verpur
eitt par árlega á svæðinu, árin 1976 og
1977 e.t.v. í Máfeyjum, þar sem þær
sáust oftast.
Toppendur eru algengari að vetrar-
lagi en á sumrin. Eftir 1975 hafa topp-
endur verið algengari að vetrarlagi en á
árunum 1966—1974. Sáust t.d. allt að
20 fuglar veturinn 1975 — 76.
Tj a 1 d u r (Haematopus ostralegus): Á vet-
urna sjást yfirleitt 10—20 fuglar við
Flatey. Tjaldar verpa árlega á austasta
hluta Flateyjar, í Langey, Innri-Máfey
og líklega í Flathólma. Hreiður hafa
einnig fundist í Akurey, Kerlingar-
hólmsflögu og Geirshólma. Á svæðinu
verpa árlega um 10 pör, þar af 5—6 á
Flatey (þó aðeins 3 árið 1975), en 3—4 í
Langey og 1 — 2 í Innri-Máfey.
R.H. og F.Guðm. töldu báðir að
tjaldur væri algengur varpfugl í Flatey
árin 1908 og 1942. Fjöldi verpandi para
hefur liklega ekkert breyst.
Tjaldar byrja að verpa viku af
maí en almennt ekki fyrr en um miðjan
mánuðinn. Ég hef fundið egg allt fram í
júlíbyrjun, en í þeim tilfellum hefur
verið um endurvarp að ræða. Talsvert
var um það, að egg eyðilögðust í stórum
flæðum eða þannig að kindur stigu í
hreiðrin.
Heiðlóa (Pluvialis apncaria): R.H. sá
aldrei heiðlóur 1908 og getur þess, að
tegundin hafi ekki þekkst í eyjunum.
F.Guðm. getur þeirra ekki, og Jón
Bogason segir þær ekki hafa fundist
verpandi á Flatey fyrr en eitthvert ár-
anna 1965—67 (í kirkjugarðinum).
Síðan varp eitt par á Flatey 1970 og
aftur eitt par 1973. Eftir það hafa heið-
lóur ekki reynt varp í eyjunni. Allt
sumarið 1977 (og liklega 1978) héldu sig
235
L