Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 82
Á 3. mynd er þekkt útbreiðsla ham-
bjöllunnar hér á landi sýnd.
LÍFSHÆTTIR
Svo virðist sem lítið sé vitað um lífs-
hætti hambjöllunnar, þar sem hún lifir
utanhúss erlendis. Margir höfundar
halda því fram, að hún lifi fyrst og
fremst i búum geitunga og býflugna og
nærist þar á dauðum skordýrum. Mér
sýnist það þó vera á misskilningi byggt.
Eins og fyrr var getið fannst hambjallan
fyrst í geitungabúi, en það var 20—25
ára gamall safngripur, og er því hæpið
að fullyrða, að slík bú séu hinir upp-
runalegu bústaðir bjöllunnar.
Hambjöllurnar valda tjóni bæði á
dýrasöfnum og plöntusöfnum. Er þeirra
fyrst og fremst getið úr skordýrasöfnum
og einnig úr þurrkuðum sveppum. Ég
tel, að bjöllurnar nærist fremur á skor-
dýraleifum í sveppunum heldur en á
sveppunum sjálfum, en í sveppum er að
öllu jöfnu rnikið af skordýrum. Beal
(1967) getur þess, að hambjöllur hafi
einnig fundist í hveiti, en sennilega hafa
þær frekar nærst þar á öðrum skordýr-
um en á hveitinu sjálfu. Ekki er vitað til
þess, að tegundin valdi verulegum
skemmdum á matvöru. Hún finnst af og
til í híbýlum, en venjulega i það litlum
mæli, að um tjón af völdum hennar er
vart að ræða.
Andersson (1973) segir fullorðin dýr
vera á ferli á tímabilinu mars—septem-
ber. Hérlendis hafa langflest þeirra
fundist lifandi á þessum tíma. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Helga Hall-
grímssyni, fundust dauðar bjöllur á
Náttúrugripasafninu á Akureyri í
febrúar 1978, en frá 29. mars og allt
fram í byrjun ágúst fundust lifandi
bjöllur. Helgi hefur þó einnig fundið
lifandi bjöllur um jól 1978 og i byrjun
febrúar 1979.
Mákisalo (1970) telur, að fullorðnu
dýrin séu einkum á ferli á nóttunni, en
hann hefurséð fljúgandi bjöllu um mið-
nætti og helst fundið þær í gluggakist-
um snemma á morgnana. Einnig er
áberandi hérlendis, hve fullorðnu dýrin
leita í glugga. Sennilega gera þau það í
leit að fæðu, þar sem þau nærast gjarn-
an á hunangi og frjókornum blóma, ef
þau eiga þess kost.
Fullorðnu dýrin eru skammlíf. Milli-
ron (1939) gerði athugun á lifslengd
fullorðinnar bjöllu. Hann einangraði
púpu 7. nóvember. Tíu dögum síðar
(17. nóvember) skreið bjalla úr púp-
unni. Dagana 24. — 26. nóvember varp
hún samtals 14 eggjum og lifði síðan í
rúma viku. Milliron komst einnig að
þeim sérstaka eiginleika safnbjöllunnar,
að hún fjölgar sér án þess að frjóvgun
fari fram. Karldýr hafa aldrei fundist.
Dreifing tegundarinnar gengur því
greiðlega, þar sem ekki þarf nema eitt
egg til að koma á fót stofni á nýjum stað.
Eggin klekjast út á tveimur vikum
(Milliron 1939). Robert (1956) getur
þess, að lirfurnar, sem hafa 5—7 ham-
skipti, meðan á uppvextinum stendur,
þroskist á einu ári, en Andersson (1973)
telur, að vaxtartími lirfanna sé mjög
breytilegur og fari eftir aðstæðum. Við
slæm skilyrði gæti uppvöxturinn tekið
töluvert lengri tíma en eitt ár. Mehl
(1975) getur þess, að lirfurnar geti lifað
marga mánuði, án þess ?ð fá mat eða
drykk. Annars eru lirfurnar ákaflega
matlystugar og geta gert mikinn usla.
Það virðist örðugt að raða endanlega
niðurlögum hambjallnanna, en eins og
fyrr var getið lifðu þær af eitrunarher-
ferð á Náttúrufræðistofnun Islands.
160