Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 91

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 91
fer frá Evrasíu til Afríku á veturna eða hauststofn um 900 milljón einstakl- inga. Þá eru laufsöngvarar 10 sinnum algengari sem varpfuglar á Bretlands- eyjum (Sharrock 1976), og Raböl & Petersen (1973) segja laufsöngvara vera 10 sinnum algengari en gransöngvara í Danmörku um fartímann. Norðlægari varpútbreiðsla lauf- söngvara kemur á norðurmörkunum cinkum fram á Norðurlöndum. Lauf- söngvarar verpa um öll Norðurlönd en gransöngvarar einungis í suðurhluta þeirra. Mismunur á varpútbreiðslu teg- undanna kemur þó einkanlega vel fram á suðurmörkum útbreiðslusvæðisins. í Evrópu og Asíu ná gransöngvarar suður á Spán, S.-Frakkland, ítaliu, Kákasus og Litlu-Asíu en laufsöngvarar í Mið- Frakkland, N.-Italíu, Austurríki og Ungverjaland. Þá eru suðurmörk lauf- söngvara öll norðan Svartahafs og Kaspíahafs, gagnstætt suðurmörkum gransöngvara, sent ná suður fyrir þessi stóru höf (Voous 1960, Moreau 1972). Þrátt fyrir, að laufsöngvarar verpi á norðlægari slóðum en gransöngvarar, fara þeir þó miklu sunnar í Afríku í vetrarheimkynni (Moreau 1972). Lætur nærri að farflug gransöngvara sé að meðaltali um 5000 km en laufsöngvara um 8000 km. Af þessu mætti draga þá ályktun, að laufsöngvarar séu betri flugfuglar. Þeir eru líka með lengri og mjórri vængi (Withcrby o.fl. 1938) og ættu því að vera betur fallnir til lang- flugs en gransöngvarar. Sýnt liefur verið fram á meðal margra fuglategunda, að mismunandi deilitegundir sömu teg- undar geta haft mismunandi vænglög- un og stærð, allt í samræmi við það hvort þeir séu far- eða staöfuglar. Stað- fuglarnir eru venjulega með styttri og breiðari vængi (sbr. Drost 1962, Schúz 1971). Samkvæmt eigin athugunum virðast mér laufsöngvarar vera mun betri flugfuglar, en ég hef mjög oft haft tækifæri til að fylgjast með báðum tegundum í birkikjarrinu í Eystri- Hvammi. Laufsöngvarar eru mun kvik- ari á greinum birkisins, þegar þeir eru við fæðuöflun. Eins og áður segir, verpa laufsöngv- arar á norðlægari slóðum en gran- söngvarar og þurfa að fara lengra til að ná vetrarheimkynnum. Þess vegna má búast við því, að laufsöngvarar fari fyrr úr sumarheimkynnum en gransöngvar- ar. Það er svo á Bretlandseyjum (Witherby o.fl. 1938), og samkvæmt Haftorn (1971) yfirgefa laufsöngvarar Finnmörku (í N.-Noregi) í fyrri helm- ingi september en gransöngvarar S,- Noreg í lok september. Laufsöngvarar virðast því yfirleitt vera fyrr á ferðinni en gransöngvarar, þótt Raböl & Peter- sen (1973) segi, að laufsöngvarar fari 2—-3 vikum seinna en gransöngvarar um Hesselö við Danmörku (? prentvilla). Gwinner o.fl. (1972) og Drost & Stansi- laus (1938) segja, að laufsöngvarar séu fyrr á ferð í Miðvestur-Evrópu á haustin en gransöngvarar. Þá eru laufsöngvarar og fyrr á feröinni í farflugi á eyjunni May við austurströnd Skotlands eða á tímabilinu snemma í ágúst—miðs októ- ber, en gransöngvarar seinni hluta ágúst—október (Eggeling 1974). Eins og 4. mynd sýndi, komu laufsöngvarar fyrr til íslands en gransöngvarar. Hvenær fuglar yfirgefa sumarheim- kynnin segir þó ekki allt. Mismunandi er, hvenær hinar ýmsu deilitegundir sömu tegundar yfirgefa sumarheim- kynnin og hversu miklir farfuglar þeir eru. Sumar hinna suðrænni deiliteg- 169
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.