Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 105
modesta from Ilafmr, Soulhweslern Iceland. Original drawing by Arnthor Gardarsson.
skellum og flikrum þannig að dýrin eru
lítt ábcrandi í því umhverfi sem þau lifa
í. Stærð erlendis er talin vera allt að 10
mm en islensk eintök hafa mælst allt að
13 mm að lengd.
Lifnaðarhœttir. Fitjalubbi finnst aðeins
á sjávarfitjum. Talið er að hann lifi ein-
göngu á þráðlaga gulgrænum þörung-
um (Xanlhophyta) af ættkvíslinni
Vaucheria.
Tilraunir hafa sýnt að seltuþolmörk
eru mjög víð, eða allt frá 5%o upp i 36%c
(Evans 1953). Hrygnir hérlendis frá júlí
fram i október, i pollum á fitjunum.
Skv. upplýsingum sent Agnar Ingólfsson
hefur góðfúslega látið ntér í té, hefur
fitjalubbi fundist i pollum mcð seltu frá
6.6%o og upp í fulla seltu (35%o) á Mela-
bökkunt í Kolbeinsstaðahreppi. Eggjum
er orpið í slimslöngur, sem hér á landi
eru allt að 2 cm að lengd með um 5000
eggjum, en eggjafjöldi virðist vera mjög
breytilegur. Rasmussen (1951) fann
mest 455 egg í eggjaslöngum fitjalubba i
Isefjord í Danmörku. Stærð eggja frá
Isefjord var 130 gm heildarþvermál,
rauðan 62 /Jtm (Rasmussen 1951).
Hand og Steinberg (1955) gáfu upp
þvermál eggjarauðunnar hjá fitjalubba
í Kaliforníu 70—80 pm. Þvermál ís-
lenskra eggja, sem ég hef mælt bæði frá
Osabotnum i Höfnum og frá Önundar-
firði, var sem hér segir: Heildarþverntál
160—170 /tm, rauðan 90 fjtm. Egg ís-
lcnskra fitjalubba eru því mun stærri en
hinna erlendu sem mæld hafa verið. Það
er vel þekkt fyrirbrigði að tegundir með
norðlæga útbreiðslu eigi stærri egg en
skyldar tegundir með suðlægari út-
breiðslu, en hitt er sjaldgæfara að finna
svo mikinn mun innan sömu tegundar.
Egg hafa fundist hérlendis frá júli fram i
október. Sviflirfustig. Fitjalubbi er ein-
ær og deyr í lok hrygningartímans.
uthreiðsla. Fitjalubbi hefur ntjög viða
útbreiðslu. I Atlantshafi finnst fitja-
lubbi frá Noregi til Frakklands, allt i
kringum Bretlandseyjar og við austur-
strönd Norður-Ameríku. Einnig á
Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku.
Hérlendis hefur fitjalubbi fundist þar
sem lians hefur verið leitað á liklegum
183