Andvari - 01.01.1992, Page 87
ANDVARI
„ALT ER LYGI NEMA ÁSTIN"
85
hefðbundið hlutverk á sviði ástarinnar. Þannig er Vefarinn aðeins upphaf
leitarinnar að nýju tilvistarsviði fyrir konur. Leit Halldórs heldur áfram í
Sölku Völku, næstu skáldsögu á eftir Vefaranum mikla frá Kasmír. Það er
ekki fyrr en með Sölku Völku sem konan afklæðist álagaham ástarinnar.
Salka Valka tekur við af Diljá og Arnaldur af Steini Elliða. Um leið og
Arnaldur kveður Sölku Völku og gengur með bundið fyrir bæði augu inn í
kenningakerfi stjórnmálanna stendur Salka Valka ótrufluð í hringiðu at-
vinnulífsins, fjárhagslega sjálfstæð og tilfinningalega óháð karlmönnum.
Salka Valka velur þá leið að hugsa sér að maðurinn sem hún elskar sé dá-
inn og sendir hann burtu. Nútímakonan er ein í bókarlok og engin von er
gefin í verkinu um tilfinningalega sameiningu konu og karls í sögu Sölku
Völku. Salka Valka skilur það vald sem Arnaldur gæti haft yfir henni þeg-
ar hann yfirgefur hana og ákveður því að hugsa sér að hann sé dáinn.
Þannig losar hún sig við tilfinningaþrá sína og þau lamandi áhrif sem Arn-
aldur gæti haft á hana. Söknuðurinn tekur við af ástarþránni. Söknuðurinn
er allt önnur tilfinning en höggið sem höfnunin veldur. Salka Valka hefur
styrk til að stíga skref í átt til sjálfstæðis en Diljá er ekki eins sterk. Hún
getur ekki greitt úr eigin tilfinningaflækju og höfundur velur ekki útgöngu-
Ieið fyrir hana.
Ef litið er yfir ritverk Halldórs Laxness er erfitt að finna kvenpersónur
sem brjótast undan ástinni og skapa sér sjálfstæða tilvist án þess að vera á
einhvern hátt háðar karlmönnum. Þær konur sem af einhverjum ástæðum
eru vansælar í hjónabandi eða ástarsambandi og vilja rjúfa þau tengsl finna
sér flestar annan karlmann sem þær flýja í fangið á. Vansæl eiginkona er
Halldóri hugleikið viðfangsefni. Þær eru margar þreyttar og tilfinningalega
vannærðar eiginkonurnar sem hann hefur skapað. Jófríður, móðir Steins
Elliða, er ein þeirra. Halldór fer mjög snemma að vinna með hjónabandið
og lögmál þess og ekki er auðvelt að finna mörg dæmi í verkum hans um
hjónabönd þar sem maðurinn og konan blómstra sem einstaklingar. Tilvist
konunnar er innan heimilisins og hún tærist upp vegna skorts á umhyggju,
sem eiginmaðurinn getur ekki veitt. Hin vansæla eiginkona í verkum Hall-
dórs er ýmist rík eða fátæk af veraldlegum auði. Hún tilheyrir ekki einni
sérstakri stétt.
Jófríður er aðeins átján ára þegar hjónabandið fjötrar hana. Hún skrifar
í bréfi til Diljár:
Þegar við vorum gift, fagnaði ég því að vígjast til samskonar alsnægtalífs og ég var
uppalin í, og hugði gott til glóðarinnar um unað hjónabandsins, því í barnaskap mín-
um hafði mér oft þótt sem hjónabandið táknaði fyllíng allra vona. Þannig hugsum við
allar meðan við erum milli vita; og barmur okkar svellur einsog leirhver af þessari
óskiljanlegu fýsn til að lykja um alla hamíngju himins og jarðar.
En ekkert er fjær því en hjónabandið að geta satt þrár sannrar konu, ég tala ekki