Andvari - 01.01.1995, Blaðsíða 32
30
JÓN VIÐAR JÓNSSON
ANDVARI
val á bókmenntaefni, einkum haft umsjón með framkvæmd þessa
dagskrárliðar, en allt mun það heldur hafa verið laust í reipum. Að
sögn Þorsteins sjálfs hafði Vilhjálmur gjarnan þann hátt á, að hann
hringdi í ýmsa leikstjóra, spurði hvort þeir ættu nokkuð í fórum sín-
um og fól þeim svo að annast framkvæmd málsins að öðru leyti. Hef-
ur Vilhjálmur fljótt fundið, að hann kom ekki að tómum kofum hjá
útvarpsþulnum og leitaði oft til hans. Þannig varð Vilhjálmur til að
treysta tengsl Þorsteins og Útvarpsins í upphafi, þó að síðar kólnaði
með þeim öll vinátta.
Störf Þorsteins við leikritaflutning Útvarps voru svo umfangsmikil,
að hér er aðeins hægt að tæpa lauslega á þeim, en leikaraferli hans
verða ekki gerð fræðilega fullnægjandi skil, nema áður séu skrásett
öll útvarpshlutverk hans, bæði þau sem ekki hafa varðveist og eins
þau sem eru til í hljóðritun. Samkvæmt gögnum stofnunarinnar lék
hann fyrsta hlutverk sitt í hljóðnemann árið 1936 í þáttum úr Pétri
Gaut, en ekki upplýsa heimildir hvaða hlutverk hann fór þar með;
vart er þó fjarri lagi að giska á, að það hafi verið Gautur sjálfur.
Skrár leiklistardeildar telja útvarpshlutverk hans fleiri en nokkurs
annars leikara, eða um 600. I ráðningarsamningi var honum ætlaður
ærinn starfi; hann skyldi auk þess að skipuleggja flutning allra út-
varpsleikrita sjálfur leikstýra öðru hverju verki og sjá um barnatíma.
Ekki er sennilegt, að þeim skilmálum hafi verið fylgt stíft eftir, en þó
annaðist Þorsteinn lengi barnatímann og fékkst mikið við leikstjórn:
153 leikstjórnarverkefni segir í yfirlitsgrein Óskars Ingimarssonar um
leikritaflutning Útvarps, sem eru einnig miklu fleiri verk en nokkur
annar leikstjóri getur státað af.26 Starfs hans við barnatímana verð-
ur sjálfsagt lengst minnst fyrir jólasveinavísurnar frægu, Krakkar
mínir komið þið sœl, sem samdar voru ásamt fleiri barnavísum fyrir
jólatímana og komu fyrst út á bók árið 1951. Þorsteinn gat verið
ágætlega hagmæltur, ef því var að skipta, og málhagur var hann í
besta lagi, sem glöggt má sjá af hinum fjölmörgu leikritaþýðingum
hans.
Með því að fela sérstökum starfsmanni umsjón útvarpsleikja var
komið á fót nokkrum vísi að sjálfstæðri leiklistardeild innan Ríkisút-
varpsins. Er nóg að renna augum yfir fjölritaða skrá Óskars Ingi-
marssonar, sem nær frá upphafi Útvarps til ársins 1977, til að sjá,
hvernig leiklistarflutningurinn vex og dafnar næstu ár. Þó er það
ekki fyrr en um miðjan sjötta áratuginn sem sú regla er orðin nokk-