Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1995, Page 73

Andvari - 01.01.1995, Page 73
ANDVARI „ALLAR GÓÐAR SKÁLDSÖGUR ERU SANNAR“ 71 svo hellti ég í mig aftur og stökk í burtu, yfir í Fjörð, einhvern fjandann, bara burt, drakk mig dauðan og kom ekki heim fyrr en undir kvöld daginn eftir. (58) Eftir að hafa brugðist Ingu og sjálfum sér reynir hann að æla ógeðinu, drekkja því í brennivíni og flýja. Einu sinni hafa verkamennirnir þó staðið saman og farið í verkfall: Heyrðu, manstu eftir allsherjarverkfallinu, þegar herinn ætlaði að fara? Fín samstaða þá, maður! Líklega í eina skiptið sem verkfallsverðir hafa ekki haft svosem neitt að gera. Og eina skiptið sem bændur hafa hellt niður mjólkinni með fúsu geði. Og það verkfall gerðum við sjálfir, þá þurfti engar stjórnir til að segja okkur fyrir verkum. (73) Fyrir þjóð á menningarstigi sögumannsins í Snörunni er ekki hægt að hugsa sér meiri ógæfu en að þurfa að standa á eigin fótum og taka sínar ákvarð- anir sjálf, rétt eins og saumakonan í Dœgurvísu þarf að gera. Sala, aðalpersónan í skáldsögunni í sama klefa (1981), streitist heldur ekki á móti. Þegar sagan gerist er hún á leiðinni suður að hitta fólkið sitt eftir sextán ár. Hún hafði ráðið sig í kaupavinnu í eitt sumar þegar hún var nítján ára, en í stað þess að fara aftur heim um haustið trúlofaðist hún öðr- um sonanna á bænum. Þar með voru örlög hennar ráðin og nú er hún að heimsækja fólkið sitt í fyrsta skipti, um leið og hún leitar lækninga fyrir sunnan. Sala er sem sagt þrjátíu og fimm ára þegar hún segir sögu sína og hún talar eins og gömul og lífsþreytt kona. Hún situr „dálítið hokin í herðum“ (14) og hreyfir sig „þyngslalega“ (22). Það er „ómögulegt að geta sér til um aldur hennar, einhversstaðar milli þrítugs og fimmtugs“ (14). Allt fas Sölu er táknrænt fyrir sjálfsímynd hennar, hún heldur aldrei fram rétti sínum og lítur á sig sem píslarvott og krossbera. Viðbrögð Sölu við öllu sem fyrir hana hefur borið í lífinu eru viðbrögð þolandans sem lítur á lífið eins og óhjákvæmilega píslargöngu sem ekki þýði neitt að ætla sér að hafa áhrif á. Eftir fæðingu fyrsta barnsins sækir að henni mikið þunglyndi sem magn- ast þegar hún skömmu seinna uppgötvar að hún er aftur orðin ólétt. Þá leitar hún huggunar hjá Berta mági sínum og þau eiga í leynilegu ástarsam- bandi sem lýkur ekki fyrr en Berti ferst á sjónum tveimur árum seinna. I sambandinu við Berta má segja að Sala líti á sig sem geranda, en um leið finnst henni hún hafa verið firrt ráði og rænu: Það er ekki sú vitleysa til, sem ekki getur komið í hugann þegar þetta tekur öll ráð af dómgreind manns. (53) í eina skiptið í lífinu sem Sala gerir eitthvað annað en aðrir ætlast til af
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.