Andvari - 01.01.1995, Page 78
76
RAGNHILDUR RICHTER
ANDVARI
sem hún þráir er að verða kona sem hið þröngsýna samfélag sem hún býr í
hefur nokkra velþóknun á.
. flest er öðruvísi en áður, kannski allt“
Leit mannsins að uppruna sínum og tilraun hans til að endurheimta glat-
aðan heim bernskunnar er einn meginþráðurinn í skáldsögunni Lifandi
vatnið (1974). Þar segir Jakobína sögu Péturs Péturssonar verkamanns. Pét-
ur tilheyrir þeim fjölmenna hópi íslendinga sem ólst upp við fátækt í ís-
lenskri sveit snemma á öldinni, raunar er Pétur sennilega nálægt því að
vera jafnaldri höfundar síns, og sem flutti ungur á mölina í leit að betri lífs-
afkomu. Á mölinni lifir hann firrtu lífi með konu sinni Lilju og börnum.
Þangað til dag einn að tilveran verður honum óbærileg, samhengis- og inni-
haldsleysi lífsins óþolandi, hann streitist á móti og ákveður að láta sig
hverfa.
Sagan lýsir bæði bernsku og fullorðinsárum Péturs. Sveitin er heimur
bernskunnar og þar ríkir einhvers konar sátt milli manna og náttúru. Fá-
tæklingar sveitarinnar eru í sambandi og samræmi við jörðina sem á þá og
sem þeir eiga.
Verkalýðurinn á mölinni, og raunar flest allt þéttbýlisfólk sögunnar, lifir
firrtu lífi úr tengslum við umhverfi sitt, annað fólk, vinnu sína og sjálft sig.
Þegar eitthvað bjátar á leitar það helst hjálpar á miðilsfundum og í geðlyfj-
um. Þegar dóttir Péturs og Lilju leitar til móður sinnar og vill tala við hana
um gildi lífsins sýnir móðirin fullkomið skilningsleysi og raunar áhugaleysi
líka. Það eina sem hún hefur að bjóða er næring fyrir líkamann og þegar
dóttirin þiggur hvorki mat né drykk býður móðirin henni taugatöflur, þær
eru úrræði hennar sjálfrar.
Þegar Pétur lætur sig hverfa tekur hann sér far með áætlunarbíl. Lesanda
er framan af ekki ljóst hvert hann stefnir en Pétur veit það upp á hár sjálf-
ur. Hann er á leiðinni heim og hann lætur ekkert stöðva sig á þeirri leið. Á
leiðinni hefur skriða fallið yfir veginn og heftir för bílsins en Pétur lætur
það ekki breyta áformum sínum:
Týndur maður lætur ekki stöðva sig þó skriða falli yfir veg. Týndur maður lætur ekki
annan mann leita sér náttstaðar. Áfangastaður hans er hinum megin heiðar. Eða er
hann ekki þar? Maður fer sér hægt, finnur að hann er frjáls. (77)
í bili getur Pétur talið sér trú um að hann sé frjáls og að hann viti hvert
hann stefnir og hvers hann leitar þar. Og hann leggur af stað gangandi í
vissu þess að finna það sem hann leitar að: