Andvari - 01.01.1995, Side 138
136
ÁRMANN JAKOBSSON
ANDVARI
hans, Þorlákur, var málstirður.67 Sannar dyggðir eru almennar. Hinn dyggð-
ugi er sá sem líkir eftir Kristi og hans sporgöngumönnum og dyggðir hans
eru skírskotun til sannleiks ritningarinnar. Dyggðir Páls eru því eitt af því
sem tengir hann Kristi og helgum mönnum.
Skýin gráta
Páll byskup á sér stað á jörðu og á himni. Hann kemst í snertingu við al-
mættið um heilagan stað og sína andlegu festarmey, Skálholtskirkju. Önnur
leið hans að Guði er eftirlíking eftir gjörðum Krists. Páll er hluti af heilögu
bræðralagi kirkjuhöfðingja auk þess að hann tengist sannheilögum dýrling-
um kirkjunnar á ýmsan hátt. Þetta sést í dyggðum hans sem eru dæmi-
gerðar fyrir alla helga menn. Sá helgur maður sem einna helst verður tengi-
liður Páls við almættið er þó frændi hans, Þorlákur helgi. Hann veitir hon-
um hlutverk í dýrkun sinni, er honum dæmi til eftirbreytni og frændi hans
að auki. Einnig hefur Guð beint samband við Pál á ýmsum æviskeiðum
hans. Það er hinn heilagi andi sem skýtur honum í brjóst að taka við bysk-
upsembættinu og í dauða Páls er Guð enn á ferð.
Páls saga trúir því að Páll sé sannheilagur maður. Náttúran sannar það.
Á miðöldum voru tími og rúm dularfull og hættuleg mögn en helgir menn
voru hafnir yfir hvorttveggja.68 Náttúran var og mikilvæg heimild. Guð er
handan orða og biblían notar því táknmál til að gefa þeim sem fjötraðir eru
af tímanum hugmynd um hið eilífa.69 Guð birtist mönnum í táknum og
náttúran, sköpun hans, birtir tákn hans.7,) Fyrir sannkristnum stríðir hið
óvenjulega ekki gegn náttúrunni. Ágústínus telur aðeins eitt kraftaverk,
það er sköpunin og endurlausnin, upprisa Krists. Sköpunarverkið er í senn
náttúrlegt og kraftaverk og þeir viðburðir sem virðast stríða gegn náttúr-
unni eru sá hluti hennar sem minnir menn á kraftaverk náttúrunnar, e. k.
áminningar (seminales rationes). Með kraftaverkum taka árnaðarmenn
þátt í að minna á hið eina, upphaflega kraftaverk. Þau eru ekki gegn nátt-
úrunni (contra naturam) heldur yfir (praeter/supra naturam). Náttúrufyrir-
bæri sem eru heiðnum undur (mira) eru trúuðum tákn (signa).71 Tákn frá
Guði í kraftaverki er öruggasta sönnunin um helgi manns.72
Náttúran samsvarar og manninum. Sjór, klettar, dýr og fuglar taka þátt í
lífi hans eins og aðrir menn.73 Elucidarius kallar manninn hinn minni heim
(microcosmos) og bendir á samsvaranir milli frumefna manns og náttúru
(holds og jarðar, blóðs og vatns, anda og lofts, hita og elds).74 Þessi sam-
svörun hins minni og meiri heims (macrocosmos) er grunnur miðaldatákn-
fræði. Maðurinn speglar náttúru og náttúran hannÁ Þetta sést hjá Ágústín-