Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1995, Page 164

Andvari - 01.01.1995, Page 164
162 GILS GUÐMUNDSSON ANDVARI Hér á landi iðka menn fugladráp á öllum aldri og af öllum stéttum. Jafn- vel eru dæmi til að prestar taki sér byssu í hönd eins og aðrir og gerist veiðiþjófar. Og eftir einum er haft að byssan hafi verið einn sá þarfasti hlutur, sem hann flutti með sér á prestssetrið - líklega að undanskilinni hempunni, þó að hann tæki það ekki fram. Nærri má geta, hver áhrif það hefur á skoðun manna - einkum æskulýðsins - á fugladrápi, þegar andlegi leiðtoginn gengur á undan öðrum með slíku fordæmi. Pað er engum fugla- morðingja afsökun, þó að segja megi að hann sé ekki verri maður á öðrum sviðum en sá, sem aldrei særir fugl. Drápiðjan er honum jöfn ástríða fyrir því. Hann hefur nautn af henni og vill ógjarnan leggja nokkuð á sig til að bæla hana niður.“ Þegar Guðmundur sendi frá sér Náttúruvernd I, gat hann þess í eftirmála að ætlun sín væri að halda áfram slíkri útgáfu, svo framarlega sem þetta fyrsta hefti fengi sæmilegar undirtektir. Væri sér efst í huga eins konar tímarit, þar sem leitast væri við „að taka málstað olbogabarna og smælingja í náttúru Islands, sem hingað til hafa notið lítilsvirðingar og miskunnar- leysis hjá almenningi. Undir því er komið, hvenær næsta bók kemur út, hvernig þessari verður tekið.“ Ekki mun Guðmundi hafa orðið að þeirri von sinni að kaupendur sýndu ritinu áhuga. Salan varð víst sáralítil og ekkert blaðanna vakti athygli á framtakinu. Úr frekari tímaritsútgáfu af hálfu Guðmundar varð því ekki, en upplagi bæklingsins mun hann að mestu hafa dreift ókeypis. Næstu ár birtust í Tímanum, Alþýðublaðinu og víðar greinar um nátt- úruvernd eftir Guðmund. Einkum verður honum tíðrætt um hernaðinn gegn rjúpunni, veiðar bjargfugla og annarra sundfugla. Falla sem áður þung orð í garð skotveiðimanna. Skógrækt er Guðmundi jafnan ofarlega í huga og ræðir hann m.a. um það, með hverjum hætti vekja megi hjá ungu kyn- slóðinni áhuga á málinu og fá hana til að leggja þar hönd á plóginn. Hér verður efni þessara greina ekki rakið nánar, en þó er ástæða til að nefna langan greinaflokk, sem Guðmundur fékk birtan í Alþýðublaðinu 22. maí til 3. júní 1935. Bar hann nafnið: Hvað verður um hlunnindi íslands? Er greinaflokkur þessi allrækilegt yfirlit um alla þá þætti náttúruverndar, sem höfundur bar fyrir brjósti, að sínu leyti hliðstæður ritgerðinni Rán eða ræktun frá 1923. Undir lok greinaflokksins kemur Guðmundur fram með þá nýstárlegu hugmynd að hér starfi föst ráðgjafar- og eftirlitsnefnd um náttúruvernd. Leggur hann til að fimm menn eigi sæti í nefndinni, en hún sé skipuð af rík- isstjórn, samkvæmt heimild frá Alþingi. Fyrsta verkefni nefndarinnar ætti að vera endurskoðun fuglaverndunarlaga, en gera þurfi gagngerar endur- bætur á þeim. Síðan yrði það aðalverkefni nefndarinnar „að rannsaka á hvern hátt yrði hægt að halda við hlunnindum landsins, bæði á sjó og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.