Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1995, Page 166

Andvari - 01.01.1995, Page 166
164 GILS GUÐMUNDSSON ANDVARI „Það er aldrei ánægjulegt að reita menn til reiði, en það er stundum eini vegurinn til að vekja þá.“ Ekki er þess getið, hverjum þessi spaklegu orð eru eignuð. Árið 1944, þegar Guðmundur Davíðsson stóð á sjötugu, sendi hann frá sér tvö rit. Var annað handhægur bæklingur, sem hann nefndi Leiðsögn um Þingvelli við Öxará, og segir titillinn til um efnið. Bæklingur þessi ber fagr- an vott um ræktarsemi Guðmundar við þennan „hjartastað landsins“, sem hann hafði skrifað um fleiri greinar en nokkurt annað áhugasvið sitt. Hinn bæklingurinn nefnist Ritgerðir, rúmar 100 bls., og hafði að geyma sex greinar. Höfðu sumar þeirra birst í blöðum undanfarin ár eða verið lesnar í útvarp. Ritgerðir þessar heita: Ánamaðkurinn í þágu menningarinnar. - Vörn veiðibjöllunnar. - Náttúruspell. - Náttúran, trúarbrögðin og kirkjan. - Um lagaboð. - Veiðiböl. Segja nöfnin nokkuð til um efni ritgerðanna. Ritgerðir þessar eru allar prýðisvel samdar og kemur stílþróttur Guð- mundar óvíða betur fram en í þessari litlu en efnisríku bók. Einkum er snerpa í ádeilugreinunum, þar sem „náttúruböðlar“ og hlutlausir hugleys- ingjar fá ótæpilega til tevatnsins. Ein ritgerðin sætti hörðum andmælum í blöðum, en þar hafði Guðmundur tekið upp vörn fyrir veiðibjölluna, sem farið var að eyða með eitri. Um eiturhernað þennan komst Guðmundur m.a. svo að orði: „Þegar skýrt var frá því í útvarpinu 1941, að Alþingi hefði samþykkt rétt Islendinga til sambandsslita við Danmörku og um stofnun lýðveldis á ís- landi, voru bændur hvattir til þess sama dag, nokkrum klukkustundum síð- ar, að gera gangskör að því að útrýma veiðibjöllu úr landareign sinni að viðlögðum sektum, fuglategund, sem var búin að helga sér ábúðarrétt á landinu áður en nokkurt mannlegt auga leit það. Hún háði harða baráttu við óblíðu náttúrunnar, eins og mennirnir, eftir að þeir komu til sögunnar. En þeir hafa nú lagt undir sig ríki hennar. Og mitt í sigurgleði yfir tilvon- andi frelsi sínu, hafa þeir nú fellt svo harðan dóm yfir fugli þessum, að mannlegt illskuvit kemst ekki lengra gagnvart nokkurri skynlausri skepnu. Ef það tækist að útrýma veiðibjöllu hér á landi, með eitri eða öðrum hætti, mundu næstu kynslóðir líta á menningu vora nú á dögum eins og við lítum nú á menningu þjóðarinnar eins og hún var á galdrabrennuöldinni.“ í ritgerð þessari flytur Guðmundur tillögu um það, með hverjum hætti ís- lenska þjóðin geti eftirminnilegast minnst þess árið 1944, að þá mun hefjast nýtt tímabil í sögu hennar, þegar hún öðlast fullkomið sjálfstæði, eftir margra alda ófrelsi: „I tilefni af þessum einstæða viðburði í sögu íslands má gera ráð fyrir að Alþingi geri eitthvert nýmæli í lögum, sem verði þjóðinni minnisstætt um langan aldur og hafi í för með sér hugarfarsbreytingu almennings til bóta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.