Andvari - 01.01.1914, Side 113
Bréf írá Baldvin Einarssyni.
109
eins málefni og koma til amtmannanna par. Pað skaðar
heldr ekki þó tillögur og ráð embættismannanna hér séu
ósamþykkar og einkisvirði, Collegiin sjá hér með egin aug-
um. í íslandi er þessu allt öðruvísi varið. Hvörr embætt-
ismaðr þar og einkanlega amtmennirnir verða aðhafaheilt
Cancellievit, ef þeir ega að duga eins og hvorsdagsmenn-
irnir í Danmörku, því stjórnin liér sér með þeirra, en ekki
sínum egin augum. Héraf sést þá hvað nauðsynlegt það væri,
að yfirvöldin gætu komið saman á íslandi og borið sig
saman um hin mikilvægustu efni, svo tillögur þeirra hefðu
einhvörja einíng í sér, og væru vel og vandlega af hendi
leystar.
t*að væri öll von á yðar hávelborinheit væru nú orð-
in hreint uppgefin að lesa og að fyrirgefa; en fyrst eg er
kominn út i þessa vitleysu, þá ætla eg ennþá að segja
yðr frá, hvörju pólitisku Systemi eg fylgi í huga mínum,
svo að yðar hávelborinheit þekki mig allan saman.
Menn tala nú á vorum dögum sem þér vitið um 3
aðal System eða máské réttara Princip, nefnilega Revolu-
tions- Restaurations- og Reformations-Principið. Revofu-
tionsprincipið vill í einu vetfángi kollkasta hinni gömlu
landstjórnarbyggíngu, og reisa aðra á nýjum grundvelli.
Hið annað er þessu gagnstætt, það vill ríla allt það nýja
niðr, allt ofan að því gamla, eða með öðrurn orðum koll-
kasta hinni nýju byggingu, og byggja aptr hina gömlu.
Priðja principið er miðt á milli hinna, það vill hvörugu
fylgja, en þó aðliafast nokkuð, það vill ekki kollkasta þeirri
byggíngu sem er, heldr laga hana smátt og smátt og auka
og hafa alltaf sama grundvöllinn og sömu máttarviðina vel
flesta. A milli Reformationsprincipsins og hinna tveggja,
á báðar liliðar við þetta standa 2 auka- eða Suppiement-
princip. Pað sem er iniðt á milli Reformationsprincipsins
og Revolutionprincipsins kalla menn Bevægelsesprincip
(principdemouvement) og það sem er á milli Reformations-
principsins og Restaurationsprincipsins kalla menn Stil-
hedsprincip (princip de stabilité). Það fyrra vill smátt og
smátt tína alla raptana úr gömlu byggíngunni, og reisa
aðra nýja við liliðina, svo að þegar liin sé fallin til fulls,
þá sé þessi albúin, eða með öðrum orðum: það vill gera