Hlín - 01.01.1953, Side 143
Hlin
141
laugssonar, og konu hans, Hjaltínu, en þau hafa gert garðinn, og
veita honum enn umsjá og hirðingu.
Síðari hluta dags hlýddu konur messu hjá ungum guðfræði-
nema, Birgi Snæbjörnssyni frá Akureyri, en síra Eiríkur þjón-
aði fyrir altari. — Fjöldi fólks var saman komið á þessu fagra
höfuðbóli þennan dag, enda veður hið fegursta.
Að lokinni guðsþjónustu söng söngkór sveitarinnar nokkur
lög. — Einnig las skáldið á Kirkjubóli: Guðmundur Ingi Krist-
jánsson, frumsamið Ijóð, um hina óhamingjusömu dönsku kon-
ungsdóttur Leónóru Kristínu. Svo var gengið til fundarstarfa á
ný, og fundi slitið. — Að loknum kvöldverði var konum boðið
í bílferð og sveitin skoðuð.
Er komið var til baka var setst að samdrykkju (hófi miklu).
— Var sungið og ræður haldnar alt til miðnættis. — Prestskon-
an, Kristín Jónsdóttir, sem er formaður kvenfjelags sveitarinn-
ar, sá um risnu alla af hinni mestu rausn og myndarbrag.
Að hófinu loknu hjeldu konur heimleiðis, glaðar og reifar
eftir ánægjulegar samverustundir.
------o------
Á ísafirði dvaldi jeg svo í nokkra daga, og naut þar gestrisni
hinna ágætu húsmæðra. Var mjer sýndur Húsmæðraskólinn,
sem er eitt hið fegursta og fullkomnasta skólahús landiins. Hef-
ur kvenfjelagið „Ósk“ staðið að því að grundvalla þann skóla.
Er jeg kvaddi þessar ágætu konur, ljet jeg svo um mælt, að
æskilegt væri að einhver úr þeirra Sambandi vildi koma norður
cg sitja okkar aðalfund, sem vera ætti á Dalvík næsta sumar.
Vissulega höfum við konur gott af að hittast og kynnast
fjelagsskapnum hver hjá annari, sem oft er að ýmsu leyti frá-
brugðinn, og altaf getum við eitthvað lært hver af annari.
Jeg sendi svo kveðju mína til fjelagssystra minna á Vest-
fjörðum og óska þeim allra heilla í starfinu.
Elísabet Friðriksdóttir.
VJELSMIÐJAN „HJEÐINN“, REYKJAVÍK, 30 ÁRA.
Árið 1941 var fyrirtækið gert að hlutafjelagi og eru 3 konur í
stjórn þess. — Mjer vitanlega er ekki öðru stóru atvinnufyrir-
tæki hjer á landi stjórnað af konum einum, og mega þær vel við
una, hve vel gengur.
Starfslið smiðjunnar voru 2 menn, auk stofnendanna, til að
byrja með, en flest hefur starfsfólkið orðið 474 (1948). — Sam-
tals hefur vjelsmiðjan greitt 51% millj. króna í vinnulaun á
þessum 30 árum.
(Helgi II. Eiríksson) („Tímarit iðnaðarmanna").