Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 67
MORGUNN
145
fanst mér vera í götu, sem liggur rétt hjá stöðinni. Þetta
var alt mjög greinilegt, og eg var ekki í neinum vafa
um, að eg hefði séð rétt
Eg sagði mæðgunum þegar frá þessu. Þær höfðu
tekið eftir breytingunni, sem stóð nokkur augnablik, og
þær gizkuðu þá á, að þetta inundi verða fyrir jarðarför
konu, sem við vissum að lá mikið veik i austurenda
kauptúnsins. Ekki félst eg á það, sagði, að þessi jarðar-
för yrði frá einhverjum húsunura fyrir neðun okkur. En
þar var þá enginn veikur.
Fjórum eða fimm dögum síðar varð gömul kona bráð-
kvödd í næsta húsi fyrir neðan stöðina. Eg var við
jarðarför hennar. Húu var borin þá götu, sem eg hafði
séð líkfylgdina fara um, og eg tók eftir því, að alveg af
tilviljun hafði eg lent i líkfylgdinni, þar sem mér hafði
fundist eg vera í sýuinni.
Feigð.
Fyrst í febrúar 1912 var eg við stöðina í Keflavík.
Það var morgun einn að fátækur heimilisfaðir úr næsta
húsi við stöðina kom inn í þeim erindum að tala til
Reykjavíkur .; hann var vanur að vera á fiskiskútu á ver-
tíð og sumrum, og í þetta sinu var hann að tala við
skipstjóra sinn, sem var að segja honuin að koma sem
fyrst inneftir, þvi að hann færi bráðlega að leggja út.
Meðan maðurinn var að tala, fanst mér eins og hvíslað
væri að mór: »t>ossi maður lcomur ekki aftur, haiin
druknar*.
Eg .a;i gðí vinstúlku minni frú þeasu þegur ú eftir og
bættí því víS, aS eg væri alveg viss um þetta
] mai'Z — man ekki mánaðardag — frótti og einn
morgun, þegar eg opnaði stöðina, að skútan, sem þessi
maður var á, hefði siglt á annað skip og hálf skipshöfnin
hefði farist. En engin frétt kom um það, hverjir hefðu
druknað.
10