Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 165
MORGUNN
III
Næst verö eg að geta þeirrar viðleitni fyrir félagsins
hönd, sem engan árangur liefir borið. Eg reyndi á síð-
asta vori að íá hingað enskan miðil, Mr. A. Vout Peters,
og etóð í bréfaskriftum við hann fram undir haustið. Um
tínaa virtist ekkert til fyriretöðu og hans var von í októ-
bermánuði En svo komu upp veikindi á heimili hans og
bann taldi sig ekki með nokkuru móti geta farið. Sömu-
leiðis reyndi eg að fá hingað eænska konu, Mies Lind af
Hageby, sem búsett er í London, er fræg íyrir mælsku
sína og aðrar gáfur, og hefir mjcg rnikia þekking á því
máli, sem félag okkar fæst einkum við. Eg skrifaði henni,
af því að fregn hafði komið hingað um það, að henniléki
hugur á að komast til íelands. En sú málaleitan varð líka
árangurslaus. Mies Lind var í sumar á ferðalagi í Norð-
urálfunni utan Englands. Enn fremur gerði varaforseti
félagsine, prófeseor Haraldur Nielsson, tilraun í utanför
sinni á siðastliðnu eumri til þees að fá hingað heimsfræg-
an miðii, amerískan, Mis. Wriedt, sem þá var stödd í
Englandi. En nærri því var ekki komandi að þessu sinni.
Eg tel alveg sjálfsagt, að slíkum tilraunum verði haldið
áfram. Takist þæi- vel, verða þær okkur að sjálfsögðu að
miklu liði. Kæmi verulega mikill miðill, útlendur, hingað,
og honum reyndust ekilyrðin góð hér, mundi það verða
til mikillar eflingar málefni voru. Auk þess er það mik-
ilsvert, að féJag vort komist í sambönd við erlenda menn,
sem vinna að sama augnamiði og það sjálft, hvort sem
þeir eru miðlar eða bafa annais koriar forgöngu. En lika
er mér það ljóst, að við megum ekki reisa of miklar
vonir A slíku. Yfirleitt eru miðlar ól'úsir á að flytja starf
sitt í aJt annað umhverfi en þeir hafa verið i. Auðvitað
stafar það af því, aö þar er ttarf þeirra örðugra og meira
undir hæJinn h>gt, hvort það kemur að notum. Við eig-
um að reyna þetta ei'tirleiðie, og ekki láta hugí’allast, þó
að það mista-kist þetta árið. En ekki er eg í neinum
vafa um það, að aðalvon okkar verðum við að setja til