Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 162
240
MORGUNN
sem félaga sinn. Því að þið eruð heill her, sem á að
fara út um heiminn og kenna heiminum að endurnýjast.
»0g þegar nokkur timi verður liðinn, þá muntu skilja
það, að faðir þinn gerði ekki gys að þér lil þess að lægja
þig og gera þig hlægilegan. Og veröldin mun skilja það,
því að við munum vinna sigur.
»Því að við getum ekki annað en unnið sigur, og það
sem nú mun gerast verður svo mikilfenglegt og ljómandi,
svo magnmikið og dcásamlegt, að þjóðir ókomna tímans
munu ekki skilja það, að mannkynið skuli hafa getað lifað
og fundist líflð viðunandi á undan þessum nýja tíma í öll-
um áttum veraldarinnar.
»Og þær leiðir, sem við munum fara til þess að vinna
sigur, og þau táð, sem við munum nota, til þess að koma
voru málefni í framkvæmd, eru svo torskilin og dásam-
leg, að þú getur enn ekki skilið þau En við munum
gefa ykkur þrótt til þess að vinnar sigur, og sigurinn mun
verða ykkur auðunnari en ykkur dreymir um«.
Þessar línur, sem tilfærðar eru hér að framan, gefa
nokkura hugmynd um þann örugga glaðværðarblæ, sem
er á þesaum óajálfráðu skrifum. Bjartsýnið er afdráttar-
laust. Guð lifir og mennirnir munu lifa eilíflega, og allir
lá þeir að lokum að sjá guð — það er aðalboðskapurinn.
Ekki verður sagt, að þeir, sem kunnugir eru ritum spíri-
tista og sálarrannsóknamanna fái neinn verulegan þekk-
ingarauka við það að lesa þessa bók. Þar eru engin fyrir-
brigði, sem þeir kannast ekki við. Þeira er það engin
nýung, að menn hafi verið teknir í þjónustu spíritismans,
án þess að hafa gerst sjálfboðaliðar. Og þeir fá enga nýja
fræðslu um annan heim í bókinni. Enginn mun samt iðr-
ast eftir að lesa hana. Það er hugnæmt að vita sumt,
sem þar stendur, ritað með hendi manns, er fram að þeirri
stund, er hann ritar, hefir litið smáum augum á alla ei-
lifðartrú. Og lýsingar höfundarins á sjálfum honurn, bæði
áður en faðir hans framliðinn kom til sögunnar og eins
eftir að köllunin liafði til hans komið, eru ritaðar af snild.
Eg skil vel einn vin minu, sem sagði nýiega við mig, að
þetta væri merkilegasta bókin, sera hann hefði lesið.