Morgunn - 01.06.1934, Qupperneq 28
22
MORGUNN
ig fjöldi góðra kirkjumanna um allan heim, og haldu
þá því, sem þar kann að finnast gott.
En hvað er þá gott í þessum efnum? Alt það er
gott, sem kemur heim við og staðfestir trú og kenningu
og alt dæmi Jesú Krists, og hjálpar til Krists trúar,
elsku og eftirbreytni; gerir lífið alt bjartara og betra
og veitir von og djörfung í dauða.
Þetta getur þó ómögulega verið af eða frá hinu
vonda, og það er blindni að sjá það ekki.
Þó að því kirkjan Krists megi líka, og eigi stund-
um, að vera eins og Tómas, að trúa ekki nema hún taki
á,þá á hún samt að vilja taka á eins og Tómas, þegar færi
gefst. Og ef hún þá finnur, sér og þekkir sinn kæra
Krist í eða á því, sem rannsakað er, þá ber henni líka
að taka því, eins og Tómas, fegins hendi og fagnandi og
styðja og styrkja sjálfa sigog aðra með því. En öllu öðru,
sem ekki ber mynd eða líkingu Krists, skyldi hún taka
varlega á og trúa laust, enda þótt einhver eða einhverjir
kunni að kalla hana „Þránd í Götu“ fyrir það.
En spiritisminn getur líka verið ,,Þrándur“ í götu
kirkjunnar, og hefir enda stundum og sumstaðar verið
það, ýmist með því, að áfella hana svo mjög og lasta
fyrir skylduga varfærni hennar, eða þá með því að vera
sjálfur of fljótfær og ógætinn, og skilja og skýra ýms
hin dularfullu og vandráðnu fyrirbrigði gagnstætt kenn-
ing og anda Krists, svo að trú og trúarlíf, og jafnvel sið-
ferðislíf manna, kann þar við að ruglast og brenglast til
óbóta. En mér hefir fundist, og finst enn, að hér eigi og
þurfi hvorugt að vera „Þrándur“ í götu annars, heldur
þvert á móti hvort öðru til götugreiðslu, gagns og bless-
unar: Kirkjan að vera fyrirmynd til gætni og grand-
varleiks í rannsókn, trú og kenning, miðað við Krist og
kenningu hans, og spiritisminn til styrktar og staðfest-
ingar og enn fyllri skilnings og skýringa á kenningum
og trú kirkjunnar, með því, sem gætnar og vandaðar
rannsóknir hans fá leitt í ljós, alveg hið sama eða sam-