Morgunn - 01.12.1940, Page 81
M O RG UNN
207
En á jörðunni hafa önnur vísindi verið meira metin.
Þau vísindi eru nú að leiða víðtækari og voðalegri bölv-
un yfir mikinn hluta mannkynsins en áður hefir þekkzt.
En þeir tímar hljóta að vera í nánd, og eru e. t. v.
þegar komnir, að hugsandi menn í öllum löndum heims
fái óbeit á þeim vísindum, sem áttu að vera til þess not-
uð, að halda vörð um hamingju lífsins á jörðunni, og efla
hana á alla lund, en gefa sig til þeirrar smánar að tor-
tíma lífinu og leggja lífsgæfu miljónanna í rústir.
Styrjaldaræðið, sem nú geysar á jörðunni, hlýtur að
opna augu vor fyrir þeirri staðreynd, að vér þurfum
önnur vísindi en þessi. Vísindi, sem innræta oss lotning
fyrir lífinu og ábyrgðartilfinning gagnvart helgidómum
þess. Vísindi, sem raunar krefjast þess eindregið, að
allar skyldur vorar séu ræktar við þetta jarðneska líf, en
gleyma þó ekki því, að eins og jörðin er ekki annað en
örlítill depill í ósegjanlega miklu stærra og stórkostlegra
sköpunarverki, svo er vort jarðneska líf ekki annað en
örlítið augnablik Guðs, ómælanlegu eilífðar, sem hver
einasta mannssál á sína heilögu hlutdeild í.
tír þeim ógöngum, sem gömlu vísindin hafa leitt
mannkynið út í, verða ný vísindi að bjarga oss. Vísindi,
sem í gegnum fallbyssudyn vígvallanna hlusta á radd-
ir þeirra, sem á vígvöllunum hafa fallið, en koma aftur
til vor yfir dauðans djúp til að benda bræðrum og systr-
um á þeirra hróplegu synd — og benda þeim jafnframt
á það, að umhverfis oss eru andleg öfl og innra með oss
býr sá dularfulli máttur, sem einn getur tryggt hamingju
lífsins á jörðunni, ef vér að eins lærum að þekkja lögmál
hans og færa oss í nyt þá blessun, sem hann býður.
Mr. Home var ekki vísindamaður og hann prédikaði
ekki heldur, en hann sannaði, og þannig varð hann með
gáfum sínum og manngöfgi einn af tilkomumestu sann-
leiksvottum mannkynsins, og einn af brautryðjendum
nýrra, andlegra vísinda á jörðunni. Þess vegna er það
ekki að ástæðulausu, að S. R. F. í. bendir á þennan mann