Morgunn - 01.12.1940, Síða 95
MORGUNN
221
arhluta, sem Hilton hafði aldrei komið í áður og enn
fremur fullyrðir hann, að hann hafi aldrei séð miðilinn
áður.
Miðillinn, sem var karlmaður, féll nú í trans, sneri
sér að Hilton og gaf honum mjög nákvæmar lýsingar af
lítilli systur hans, sem hann sagði, að væri hjá honum og
hefði andazt tveggja ára gömul af slysi með sjóðandi
vatn. Öll þessi lýsing hans var nákvæmlega rétt.
Hilton heldur frásögu sinni áfram: „Því næsttók mið-
illinn að fullyrða, að önnur systir mín væri einnig við-
stödd. Ég sagði, að þar skjátlaðist honum, en hann stað-
hæfði og stóð fast á því, að þetta barn hefði ekki lifað
meira en eina klukkustund á jörðunni og hefði fæðst
handieggjalaust. Það var ékki laust við að við félag-
arnir hentum síðar dálítið gaman að „handleggjalausa
barninu ímyndaða“. Nokkurum mánuðum síðar fór ég
heim til mín, út á land. Þegar ég sagði móður minni þessa
sögu, varð hún skyndilega náföl og hrópaði: „Hvernig
1 veröldinni hefðir þú átt að geta komizt að þessu? En
það er satt, ég eignaðist einu sinni barn, sem fæddist
handleggjalaust, og það dó innan einnar klukkustund-
ar. En auk mín hefir enginn hugmynd um þetta atvik
annar en faðir þinn, læknirinn og hjúkrunarkonan. Ég
hefi aldrei haft orð á þessu við nokkra lifandi sál.“
Því fer ákaflega fjarri að þetta atvik sé einstakt, því
að hliðstæð fyrirbrigði gerast hjá fjölmörgum góðum
miðlum um víða veröld, þótt þeim sé engan veginn gef-
inn sá gaumur, sem þau eiga skilið. Önnur mál og ólíku
auvirðilegri vekja meiri athygli, og eru frekar höfð til
frásagnar í samtölum manna á meðal.
En aðalatriðið í þessu máli er þetta: hvernig geta and-
stæðingar spíritismans skýrt þessa merkilegu staðreynd?
Vér erum ekki í vandræð'um með skýringuna, en hver er
skýring þeirra?
Geta þeir þarna gripið til þeirrar auðkeyptu uppá-