Morgunn - 01.12.1940, Síða 108
234
M O R G UNN
blandin. S; R. F. í. hefir sjálfsagt enga tilhneiging eða
ástæðu til að draga dulur á það, sem hér hefir komið fyr-
ir, þótt ekki þurfi aðstoð þess til að útbreiða það, en að
mínu viti hefir það enga ábyrgð á því, án þess að með
því sé sagt, að það vilji ekki eftir ástæðum sínum og
starfsháttum gjöra sitt til að slíkt komi' sem minnst fyrir.
En engin stofnun né stjórn getur fyrirbyggt að falsaðir
víxlar slæðist með á markaðinn.
Um þriðja atriðið, sem ég hefi heyrt nefnt í sambandi
við þetta mál, mun ég geta verið fáorður. Það er, að
þetta atvik geti haft áhrif á prestakosninguna, sem hér
stendur fyrir dyrum, vegna þess að þrír eða fjórir og ef
til vill fleiri af umsækjendunum játa sannindi sálarrann-
sóknanna og að þau séu kristindóminum ávinningur en
ekki skaði, þá grípi andstæðingar þeirra þetta fegins
hendi til þess með því að draga frá þeim hug kjósenda.
En hvorki vil ég gjöra andstæðingum getsakir, né get
hugsað mér, að þetta hafi slík áhrif. Því að það er hvort-
tveggja, að bæði hér og í öðrum löndum, sem leyfi hafa
til að hugsa frjálst, fer þeim góðum prestum, sem aðhyll-
ast spiritisma óðum fjölgandi og að um suma þessa um-
sækjendur er það kunnugt að þeir eru vel lærðir guð-
fræðingar, áhugasamir um kristindómsmál og góðir
ræðumenn, einn jafnvel með það orð á sér, að hann fylli
venjulega þau hús, er hann talar í.
Ég var jafnvel að hugsa um að sleppa, að minnast á
þetta þriðja atriði, en það hefir borið svo mjög á góma í
þessum umræðum, að mér finnst einhver rödd verða að
benda á, hve ósanngjarnt og ástæðulaust væri, að þessi
atbijrður hefði spillandi áhrif á, að kjósendur velji þá
presta, sem þeir vita eða telja besta. Enginn þarf að ótt-
ast að neinn prestanna afsaki hinn mjög umtalaða at-
burð, þeir eru allir jafnsáklausir af honum. I þessu sam-
bandi vil ég og vísa til þess, sem ég hefi ritað hér að
framan.