Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 110
236
MORGUNN
í Lundúnum, sem nefnir sig Alþjóða
ng an s onn. g^iarranns5]ínas^0fnunjna j,ar átti hún
að leggja sig undir rannsókn og halda samkomur, sem
líkamningamiðill. í þeirri för var með henni nefndur Kr.
Kr. og frú ein úr Reykjavík, sem var túlkur. Þótt hr.
Nandor Fodor, sem átti að annast L. Á., meðan hún
var í Lundúnum, sé að mörgu merkur maður og stór-
lærður í sálarrannsóknum, virðist framkoma hans í
þessu máli hafa verið nokkuð vafasöm. Frúin, sem var
túlkur í ferðinni, hefur tjáð mér, að naumast hafi nokk-
ur veruleg rannsókn farið fram á L. Á., að Mr. Fodor
hafi sýnzt vera mest um það hugað, að láta ferðina
borga sig fjárhagslega og að flestar aðstæður þar hafi
reynzt allt aðrar en við hefði mátt búast. í Lundúnum
virðist frú L.Á.hafa verið sterklega grunuð um svik.enda
hefur hún nú játað fyrir réttinum, að hafa beitt þar
brögðum þrisvar sinnum, með aðstoð Kr. Kr. Það er leitt
að þurfa að láta Morgunn flytja lesend-
unum þessa ógeðslegu sögu, en þó er það
nauðsynlegt, því að af henni eigum vér margt að geta
lært. Spíritistum er það vitanlega mikið sorgarefni, að
slíkum aursporum skuli stigið inn á heilaga jörð, og að
svo blygðunarlausum blekkingum skuli beitt í heil. máli.
, í þeirra augum er naumast nokkur verkn-'
Hvað getum „ . , ,
vér lært- aður vern en þessi, og raunar er hann
verstur vegna þess, að ástæða virðist til
að ætla, að frú L. Á. hafi raunverulega miðilsgáfu. —
Væri hún ekkert annað en loddari væru svik hennar
fremur afsakanleg, en óskiljanlegt er að sá, sem finnur
með sér þennan dýrmæta hæfileika og veit sig í ein-
hverju sambandi við ósýnilega veröld, skuli leiðast til
svo samvizkulausra svika. En hvað getum vér af þessu
lært? Vér getum af þessu lært hvernig miðlarnir eiga
ekki að vera, því að ef miðilsgáfan er gerð að verzlun-
arvöru án þess að miðlarnir hafi ríka ábyrgðartilfinn-
ing, geta þeir æfinlega leiðst til þess hróplega athæfis,