Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1949, Blaðsíða 22
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR A ÍSLANDI.
f þriðja dálki hvers mánaða’*, sem hefir yfirskriftina »T. í h.« (tungl í
hásuðri), og í töblunni á blaðsíðu (15) er sýnt, hvað klukkan er eftir íslenzk-
um miðtíma, þegar tunglið og sólin eru í hásuðri í Reykjavík. En komast má
að því, hvað klukkan er eftir íslenzkum miðtíma, þegar tunglið eða sólin
er í hásuðri annars staðar á íslandi, með því að gera svo nefnda >lengdar-
leiðréttingu« á Reykjavíkurtölunni. Verður hún -j- 4 mínútur fyrir hvert lengdar-
stig, sera staðurinn liggur vestar en Reykjavík, og — 4 mín. fyrir hvert
lengdarstig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík. T. d. er Raufarhöfn
um sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdarleiðréttingin þar er þá
— 24 mín., og 5. júlí er sól í hásuðri frá Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08.
(12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiðafirði liggur einu lengdarstigi vestar
en Reykjavík og lengdarleiðréttingin er þar 4 mín. Þann 6. febrúar er því
tungl í hásuðri frá Flatey 18 46 (18 42 -f- 0 04 = 18 46).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miðvikudag.
Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er efri rönd sólar sést koma
upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til sólarlags (sl.) þá er sólröndin sést
fara niður fyrir sjóndeildarhringinn. Til þess að finna sólarganginn annars
staðar á landinu, þarf að gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama
bátt sem við sól eða tungl í hásuðri, en auk þess breiddarleiöréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að eins eftir breiddarstigi staðarins, heldur
er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. í eftirfarandi tðblu er
sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Reykjavík,
þegar sólargangurinn í Rvík stendur á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitíf
(+), þegar sólargangur lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólar-
gangurinn styttist. Ðreiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tíma sólar-
lagsins í Rvík, en dregin frá sólaruppkomutímanum. Sé breiddarleiðréttingin
negatíf (—), veröur að taka forteikniö til greina.
Dæmi: Sólargangur 27. april á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar og 2Va
stigi norðar en Rvík.
Þenna dag er sólargangur í Reykjavík 16 st. 23 mín. Breiddarleiðrétting
töblunnar fyrir 2Va stig norður og sólargang 16 st. er + 16 mín. en fyrir 17
st. + 21 mín. Fyrir 16 st. 23 mín. veröur hún því + 18 mín. Lengdarleiörétt-
ingin er — 24 mín.
í Reykjavík...............an. 4 15 al. 20'8
Breiddarleiðrétting . . — 18 +18
Lengdarleiörétting — 24 — 24
Á Raufarhöfn..............su. 3 33 al. 20 32
Atinað dæmi: Sólargangur 26. okt. í Flatey á Ðreiöafiröi, sem er 1 stigi
vestar og 1 l/i stigi norðar en Rvík. Sólargangur í Reykjavík er 8 st. 41 mín.
f Reykjavík................au. 7 51 al. 16 32
Breiddarleiðrétting . . +6 —6
Lengdarleiörétting . . +4 + 4
f Flatay........................ 8 01
al. 16 30