Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1949, Blaðsíða 25
hægri, eftir því hvort maöur snýr sér til norður3 eða suðurs. Vaxandi tungl
á tyrsta kvartili er þar líkt og bátur í lðgun. Það er dálítið á eftir sólunni,
og sést aðeins á vesturloptinu, þegar sólin er gengin undir. Hornin snúa þá
bæði upp. Eins gera þau á minnkandi tungli á síðasta kvartili. Það er aðeins
á lopti síðari part nætur á austurloptinu, en hveifur sjónum, þegar sólin
kemur upp.
Samkvæmt Iðgum um ákvörðun tímans 16. nóv. 1907, akal hvarvetna i
lalandi telja tímann eftir miðtíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenwich.
I almanaki þessu eru því allar stundir taldar eftir þessum svonefnda (slenzka
miðtfma, 27 mínútum 43,2 aekúndum á undan miðtíma Reykjavíkur.
f þessu almanaki er tími alls staðar reiknaður í klukkustundum og mín-
útum frá síðast liðnu miðnætti. Sólarhringurinn byrjar á miðnætti (0 00) og
endar á næsta miðnætti (24 00). Miðnætti milli 15. og 16. ágúst verður þá
annaöhvort 15. ágúst 24 00, eða 16. ágúst 0 00. Sú stund sólarhrings, sem áður
var kölluð kl. 12 35 f. m., heitir nú aðeins 0 35, en sú stund, sem áður var
kölluð kl. 5 13 e. m., heitir nú 17 13.
Með lögum nr. 8, 16. febr. 1917, er ríkisstjórninni heimilaö að flýta klukk-
unni, ef það þykir henta (>sumartími«), og veröur, ef það er gert, að sjálfsögöu
*ö taka tillit til þess við notkun almanaksins.
(23)