Hugur - 01.01.2006, Page 217

Hugur - 01.01.2006, Page 217
Ritdómar 215 „Vísindabyltingin“ krufin til mergjar Andri Steinþór Björnsson: Visindabylt- ingin og rætur hennar ífornöld og miðöld- um. Háskólaútgáfan 2004. 380 bls. Saga heimsmyndarinnar fram á 17. öld hefur heillað raunvísindasagnfræðinga frá því í upphafi tuttugustu aldarinnar. Hér á landi birtist þessi áhugi í bók Þor- steins Vilhjálmssonar prófessors Heims- mynd á hverfanda hveli, sem út kom í tveimur bindum á árunum 1986 og 1987. Með þessu riti og kennslu við Há- skóla Islands hefur Þorsteinn unnið mjög þarft verk við að kynna Islendinga fyrir raunvísindasagnfræðinni, og er Andri Steinþór Björnsson ásamt rit- dómara í hópi þeirra sem geta seint full- þakkað Þorsteini fyrir að kveikja þennan áhuga. Andri fetar í fótspor Þorsteins í Vísindabyltingunni með umfjöllun sinni um sögu heimsmyndarinnar og vakna óhjákvæmilega spurningar um gildi þess að endurtaka verk Þorsteins þó að nærri tuttugu ár séu síðan rit hans kom út. Hefði Andri ekki átt að beina kröftum sínum inn á önnur svið raunvísindasagn- fræðinnar í stað þess að bæta við annarri bók á íslensku um heimsmyndina? Svar mitt við þeirri spurningu er já. I heim- ildariti sem þessu verður að gera þá kröfu til höfundar að hann styðjist við nýjustu túlkanir innan fræðigreinarinnar, á þann hátt til dæmis að hægt sé að bera saman rit Andra og Þorsteins og átta sig á því hvar fræðunum hefur fleygt fram. Þess- ari sfyldu bregst Andri því hann hefur nánast ekkert nýtt fram að færa umfram Þorstein, sem verður þess valdandi að yf- irlýsing Andra um að sólmiðjukenning- in hafi verið „helsta afrek vísindabylting- arinnar" (267) flýtur um í órökstuddu tómarúmi. Af bóltinni má ráða að Andri hefur mikið dálæti á forngrískri heimspeki og rekur hann sögu hennar ítarlega í þrem- ur köflum, allt frá náttúruspeki Mílet- osskólans til jarðmiðjukenningar Ptól- emaíosar. Því næst taka við tveir kaflar þar sem fjallað er um miðaldirnar og endurreisnartímann. I endurreisnarkafl- anum minnist höfundur á náttúrugaldur og segir það hafa komið „sagnfræðingum verulega á óvart þegar í ljós kom að Newton hafði varið meiri tíma í gull- gerðarlist, sem er ein gerð af náttúru- galdri, en það sem nútímafólki finnst ,réttnefnt‘ vísindastarf' (221). Síðan bendir Andri réttilega á að Newton gerði væntanlega engan greinarmun á gullgerðarlist, trúarbrögðum og vísind- um því í hans huga mynduðu þau „eina heild“ og leiðir Andri líkur að því að hugmynd Newtons um „þyngdarkraft sem berst samstundis á milli hluta“ (222) hafi orðið til vegna áhrifa frá náttúru- galdri,1 sem var gjörólíkur hefðbundn- um galdri.2 Með því að tengja náttúru- galdur einungis við kenningasmíð Newtons missir Andri af gullnu tækifæri til þess að gera sögu tilraunavísindanna, þess sem þá var kallað tilraunaspeki (ex- perimental philosophy), og þar með nýrri túlkun á „vísindabyltingunni" skil, eins og fjallað verður hér á eftir. I kaflanum um „vísindabyltinguna“ nefnir Andri í framhjáhlaupi þátt „hand- verksmanna og galdramanna“ í þróun raunvísinda á 16. og 17. öld en gerir ekk- ert meira með þetta, frekar en í kaflanum um endurreisnina, því „stærðfræðigrein- arnar og náttúrspeki" eru til umfjöllunar í bókinni „en ekki náttúrufræði og lækn- isfræði" (233, 234). Það verður að virða þessa aðgreiningu Andra en ritdómari telur hana hins vegar mjög óheppilega: auk þess að gefa ranga mynd af sögunni, enda voru tilraunir svo sannarlega hluti af náttúruspekinni (naturalphilosophý)? ýtir hún undir þá ríkjandi skoðun að „stærðfræðihefðin" sé á einhvern hátt merkilegri en „tilraunahefðin"; hugmynd sem á rætur að rekja til fordóma Forn- grikkja gagnvart handverki (41). Með áhuganum sem endurreisnin kveikti á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.