Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Blaðsíða 33
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130
Meltingartruflun?
Meginefni pessa þáttar er fyrirbærið
dvspcpsia. tilraunir til þess að skilgreina
hugtakið og þýða orðið. Meltingar-
sérfræðingur hringdi og vildi fá lipra þýðingu tii að
nota í fræðsluefni fyrir sjúklinga og eins í almennum
umræðum. Honum fannst að þýðingar Iðorða-
safnsins, meltingartruflun og meltingartregða. væru
hvorki nógu nákvæmar né nægilega liprar í með-
förum. Hann taldi að orðið væri nú oftast notað um
„safn ýmissa óþœginda og einkenna sem tengdust
máltíðum og virtust upprunnin frá efri hluta melt-
ingarvegar.“ Flestir hafa fengið meltingartruflun og
þekkja því fyrirbærið af eigin raun, en undirritaður lét
sig þó hafa það að kafa í nokkrar nýjar biblíur lyf-
læknis- og meltingarfræða, auk tiltækra orðabóka.
Dyspepsia
Erlendar læknisfræðiorðabækur segja orðið dyspepsia
komið úr grísku og að fyrri hlutinn dys- merki slæinur
eða erfiður, en að seinni hlutinn, pepsia, sé leiddur af
pepsis sem merki melting. Bein þýðing - samkvæmt
þessu - er því slœmt ástand meltingar. Gera má ráð
fyrir að hugmyndin að baki heitinu hafi verið sú að
sjúkdómseinkenni frá kviðarholi gefi til kynna slæmt
ástand meltingar eða lélega starfsemi líffæra.
íðorðasafn lækna hefur tekið ofangreindar
þýðingar, mcltingartruflun og meltingartregöa,
óbreyttar upp úr íslenskum læknisfræðiheitum
Guðmundar Hannessonar. í erlendu orðabókun-
um má finna býsna margar tegundir af dyspepsia,
svo sem acid dyspepsia, appendicular dyspepsia,
atonic dyspepsia, cholelithic dyspepsia, cardiac
dyspcpsia, colonic dyspepsia, functional dys-
pepsia, gastric dyspepsia, intestinal dyspepsia,
nervous dyspepsia og jafnvel ovarian dyspepsia.
Skilgreiningar
í sumum bókum meltingarfræðanna eru gerðar til-
raunir til að skilgreina hugtakið dyspepsia. Ljóst
virðist að það felur í sér samsafn óþœgilegra ein-
kenna sem oftast tengjast efri hluta meltingarvegar.
Helst þeirra eru verkir, brjóstviði, fyllitilfinning,
ógleði, uppköst, lystarleysi, uppþemba, ropar og
vindgangur. Verkjasvæðið er uppmagáll (epigast-
rium), en greinilegt virðist að meinsemdir í ilestum af
þeim líffærum, sem tengjast meltingu, geta geislað
verkjum þangað. Uppmagáll er reyndar eitt af stirð-
legu heitunum í líffærafræðinni, en það er ekki verk-
efni þessa pistils og verður að bíða betri tíma!
Skilgreining á dyspepsia er ekki fyllilega sam-
ræmd. I víðustu merkingu er átt við hvert það
ástand, sem gefur sig til kynna með einu eða fleir-
um af ofangreindum einkennum. Lögð er áhersla á
að einkenni líkist sjúkdómsmynd maga- eða
skeifugarnarsárs, en að margt fleira komi til greina
í mismunargreiningu, allt frá hjartasjúkdómi til
ýmissa nteinsemda í neðri hluta kviðarhols, jafnvel
í þvag- og kynfærum. í þrengstu merkingu er hins
vegar átt við það sem á ensku kallast ýmist non-
ulcer dyspcpsia, essential dyspcpsia eða idiopathic
dyspcpsia. en það er sjúkdómsástand sem einkenn-
ist af samstæðu þeirra einkenna, sem finnast við
maga- eða skeijugarnarsár, án þess að um sár sé að
rœða. Ekki er fullvíst hvaða vefjabreytingar liggja
til grundvallar, því að ástandið er gjarnan afmark-
að með magaspeglun án sýnistöku, en sennilega
má gera ráð fyrir að raunveruleg bólga sé til stað-
ar, gastritis eða duodenitis. Sumar heimildir vilja
koma dyspepsia á bás sem upper abdoniinal syn-
dronie. heilkenni einkenna frá efri hluta kviðar-
hols. Þá hefur heitið Moynihan's disease verið notað
um samstæðu einkenna sem benda til skeifu-
garnarsárs, en koma fyrir án þess að sár finnist. Til-
lögur að liprum þýðingum væru vel þegnar. Fram-
hald í næsta blaði.
FL 1991; 9(11): 9
Dyspepsia
í SÍÐASTA ÞÆTTI VAR FJALLAÐ UM DYSPEPSIA,
uppruna orðsins, merkingu orðhluta og
skilgreiningu á hugtakinu. Undirritaður er
sammála því áliti meltingarsérfræðingsins að þýð-
ingar íðorðasafnsins á dyspepsia, meltingartruflun og
meltingartregða séu ekki nógu góðar. Meltingar-
truflun er að vísu rétt þýðing á gríska orðinu
dyspepsia, en það er einu atkvæði lengra og heldur
stirðlegra. Meltingartruflun er auk þess tæpast nógu
sértækt heiti þegar vísað er í fyrrgreinda skil-
greiningu: Samsafn óþœgilegra einkenna sem tengjast
efri hluta meltingarvegar.
Orðið dyspepsia virðist hafa tekið sérstakri
merkingarlegri umbreytingu frá því almenna,
(samanber upptalningu í síðasta pistli á ýmsum
tegundum dyspepsia), til hins sértæka, (samanber
non-ulcer dyspepsia). Þetta orð, sem upphaflega
var notað sem samheiti tii að tákna margs konar
óþægileg einkenni frá kviðarholi, er nú fyrst og
fremst notað um tiltekin einkenni frá ákveðnum
hluta meltingarvegar. Segja má því að liðir þessa
samsetta orðs hafi glatað ákveðinni merkingu um
leið og orðið varð sérheiti.
Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87 33
L